Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Fannagil 10 - Glæsilegt 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum, með innbyggðum bílskúr og stórum útigeymslum við vinsæla götu í Giljahverfi - stærð 227,9 m² auk um 18 m² geymslu undir verönd.
Heildarstærð með geymslunni er um 246 m²
* Vandaður garður, steypt og hellulögð bílaplön, steyptar verandir með skjólveggjum, heitum potti og útisturtu.
* Tvær rúmgóðar geymslur fyrir hobbýin.
* Gegnheilt hnotuparket og flísar á gólfum.
* Allar innréttingar, fataskápar og innihurðar er sérsmíðað, spónlagt með hnotu.
* Ljós kvartssteinn er á bekkjum í eldhúsi og baðherbergjum.
* Innfelld lýsing í helstu rýmum og aukin lofthæð í hluta efri hæðar.
* KNX stýrikerfi fyrir ljós og hita.
* Útsýni.
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Efri hæð 135,1 m²: Forstofa, eldhús og stofa í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Neðri hæð, 92,8 m² auk óskráðrar um 18 m² útigeymslu: Sjónvarpshol, baðherbergi, tvö svefnherbergi og tvær rúmgóðar geymslur.
Forstofa er með flísum á gólfi, fjórföldum fataskáp og innfelldri lýsingu.
Eldhús, sérmíðuð spónlögð hnotu innrétting og eyja með ljósri kvarst borðplötu. Mjög gott skápa- og bekkjarpláss. Siemens tæki, ofn, örbylgjuofn, helluborð með viftu út og íssápur. Borðstofa með gólfsíðum útsýnisglugga til austurs. Milli stofu og eldhúss er forsteyptur hringstigi með járn handriði niður á neðri hæðina.
Stofa og eldhús eru í alrými þar sem flísar eru á gólfum og innfelld lýsing í loftum. Stórir gólfsíðir gluggar til tveggja átta og hurð til suðurs út á steypta verönd.
Sjónvarpshol er á neðri hæðinni með flísum á gólfi og innfelldri lýsingu.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með gegnheilu hnotu parketi á gólfum og sérsmíðuðum spónlögðum hnotu fataskápum. Innfelld lýsing er í loftum. Úr hjónaherbergi er útgengt á verönd til suðurs og úr öðru barnarherberginu á neðri hæðinni er útgengt til austurs. Stærð herbergja er skv. teikningum 11,2 , 10,3 , 10,3 og 9,8 m²
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð. Aðalbaðherbergið er á efri hæðinni og er það mjög rúmgott. Þar eru flísar í hólf og gólf, innfelld lýsing, spónlögð hnotu innrétting með ljósri kvarts borðplötu, upphengt wc, handklæðaofn, baðkar og rúmgóð walk-in sturta. Opnanlegur gluggi og útsog. Baðherbergi á neðri hæðinni er í svipuðum stíl, flísar á gólfi og veggjum, spónlögð hnotu innrétting með kvarst borðplötu, upphengt wc, handklæðaofn og walk-in sturta. Innfelld lýsing og útsog.
Þvottahúsið nýtist sem annar inngangur fyrir eignina, þar eru flísar á gólfi, góðir skápar og spónlögð hnotu innétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í bílskúr.
Bílskúr er skv. teikningum 24,1 m² að stærð og með flísum á gólfi og hluta veggja. Innst í bílskúrnum er spónlögð hnotu innrétting með flísalagðri borðplötu. Innkeyrsluhurð er með rafdrifnum opnara.
Tvær mjög rúmgóðar geymslur eru á neðri hæðinni og er utangengt í þær. Önnur er undir veröndinni, um 18 m² að stærð og með lítilli "bílskúrshurð". Undir eldhúsi, þvottahúsi og bílskúr er 30,8 m² geymsla með flísum á gólfi og þar er lofthæð um 2,25 m. Bílskúrshurð með gönguhurð í. Fyrir framan er steypt stétt með hitalögnum í hluta. Aðkoman að báðum geymslunum er niður malarborinn ramp á norður horni lóðar.
Lóð: Fyrir framan bílskúrinn er steypt og hellulagt bílaplan fyrir þrjá bíla með hitalögnum í stærstum hluta. Einnig eru hitalagnir í tröppum niður með norðurhliðinni og í stétt með austurhliðinni að tröppum upp á verönd.
Fyrir framan húsið og með suðurhliðinni eru steypt verönd með skjólveggjum. Hitalagnir eru í hluta. Tenglar og lýsing er í veggjum. Útisturta og heitur pottur.
Á lóðarmörkunum að sunnan er steypta rúmgott bílaplan fyrir t.d. hjólhýsi.
Annað
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Lokað frostlaugskerfi er í bílaplani og veröndum.
- Útsog er frá báðum baðherbergjum, þvottahúsi og úr stærri geymslunni.
- Ídráttarrör úr rafmagnstöflu fyrir rafhleðslustöð.
- Sólstoppgler í gluggum.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.