***DOMUSNOVA KYNNIR * HRAUNGATA 29, GARÐABÆ * GLÆSILEG ENDAÍBÚÐ***
Virkilega falleg nýleg 4ra herbergja endaíbúð á annarri hæð (jarðhæð norðan megin) merkt 0204 ásamt stæði merktu íbúðinni í lokuðu bílahúsi merkt B02.
- Aukin lofthæð er í íbúðinni
- Vandað parket og flísar á gólfum íbúðar
- Mjög rúmgóðar svalir til suðurs með vandaðri svalalokun og viðarklæðning á gólfi. Nýtist vel sem framlenging á stofurými.
- Íbúðinni fylgir stærsta stæðið í bílakjallaranum mjög vel staðsett með tengingu fyrir rafhleðslu
- Íbúðir eru aðskildar frá sameignargöngum með útigöngum sem gefur eignunum yfirbragð sérinngangs
- Nóg er af stæðum beggja vegna hússins og búið er að setja hleðslustaura á bílaplanið sunnanmegin
- Eignin er sérstaklega vel staðsett innan hverfis, það er stutt í Urriðaholtsskóla og leikskóla hverfisins ásamt Vinagarði.Fjölbýlishúsið og öll sameign þess er mjög vandað og til fyrirmyndar.
Birt stærð eignarinnar er 130,3fm., þar af geymsla 9,9fm. NÁNARI LÝSING:Anddyri: Flísar á gólfi, vandaður
sérsmíðaður fataskápur upp í loft.
Eldhús: Falleg
sérsmíðuð innrétting með
tanga (
eyju), innfelldur
ísskápur og
uppþvottavél,
tveir ofnar (annar combi
) og
spanhelluborð og gufugleypir. Fallegur
steinn á borðplötum.
Parket á gólfi
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi.
Parket á gólfi. Útgengt út á
skjól- og rúmgóðar svalir með
svalalokun frá Ál og gler og
viðarklæðningu á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta,
upphengt salerni,
"walk-in" sturta með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug,
handklæðaofn.
Steinn á borðplötu.
Gluggi á baðherbergi
Þvottahús: Flísar á gólfi, vönduð innrétting undir þvottavél og þurrkara, skolvaskur.
Gluggi á þvottahúsi.
Hjónaherbergi: Fataskápur upp í loft. 15,3 fm.
Parket á gólfi
Herbergi: Fataskápur upp í loft. 9,1 fm.
Parket á gólfi
Herbergi: Fataskápur upp í loft. 10,4 fm.
Parket á gólfi
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi.
Parket á gólfi. Útgengt út á skjólgóðar svalir.
Geymsla: í sameign
Sameignargangar mjög
vandaðir og snyrtilegir með
sjálfvirkum hurðaopnunum, flísum og teppum á gólfum og stigagangi. Íbúðir eru aðskildar frá sameignargöngum með útigöngum sem gefur eignunum
sérinnganga brag.Bílageymsla snyrtileg og óvenju
rúmgott bílastæði fylgir íbúðinni með tengingu fyrir rafhleðslu.
Helstu kostir við frágang:Við hönnun hússins var tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan, álklætt að utan og gluggar ál-tré.
Sólveig Andrea Jónsdóttir, innanhúsarkitekt, veitti ráðgjöf við hönnun innréttinga, gólfefna og litaval.
Innréttingar frá Ormsson ehf. og framleiddar af ARENS.
Steinborðplötur eru á eldhúsi og baðherbergjum
Innfelld lýsing í íbúðum. Snjallkerfi frá Plejd. Hægt að stýra dimmanlegum ljósum í snjallsíma eða spjaldtölvu. Myndavéladyrasími er í öllum íbúðum.
Eldhústæki frá Ormsson, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti, combi bakaraofn, spanhelluborð og gufugleypir.
Gólf baðherbergja, þvottahúsa og forstofa eru flísalögð með 60 x 60 flísum frá Birgisson
Parket frá Birgisson, Ringo innihurðir einnig frá Birgisson
Húsið klætt að utan með vandaðri álklæðningu. Glerhandið á svölum.
Í stofum eru lofttúður með innbyggðri hljóð- og ryksíu sem tryggja innstreymi og þar með hringrás lofts um íbúðina. Umhverfið: Húsið er staðsett í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Urriðaholt byggir á hugsjón um að íbúabyggð eigi að hámarka lífsgæði fólksins sem þar býr í sátt við náttúruna í kring og umhverfið allt. Skipulag Urriðaholts er fyrsta hverfið hér á landi til að hljóta vistvottun samkvæmt vottunarkerfi BREEAM Communities.
Nánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.