Domusnova og Ingunn Björg kynna 7 herbergja endaraðhús á tveimur hæðum við Hagasel 14 Breiðholti. Rúmgóð timburverönd. Mjög snyrtileg afgirt hellulögð stétt fyrir framan hús og meðfram húsi. Húsið er staðsett í rólegum botnlanga, og nýtur næðis frá umferð bakvið hús þar sem að engin umferðargata liggur upp að húsi frá suðurhlið. Eignin skiptist á eftirfarandi hátt: Forstofa, 5 svefnherberbergi, stofa / borðstofa, sjónvarpshol, 2 baðherbergi, eldhús, þvottahús, geymsla, bílskúr. Húsið var nýlega múrviðgert að utan og málað að sögn seljenda. Skv. FMR er eignin skráð 176,4 fm2 þar af er bílskúr skráður 18,8 fm2.
Nýlegar endurbætur að sögn seljenda : - Allar innihurðar hafa verið endurnýjaðar.
- Skipt hefur verið um ramma á rofum og tenglum.
- Þakkantur endurnýjaður fyrir ca 6 árum.
- Hús sprunguviðgert og málað fyrir ca 4 árum.
- Lóð endurnýjuð 2015 - 16. Byggð ný verönd ásamt skjólveggjum, hellulagt meðfram húsi og verönd fyrir framan hús hellulögð.
Nánari lýsing:Efri hæð:Forstofa: Flísar á gólfi, skápur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Vaskur, salerni.
Eldhús: Bjart og rúmgott með sérsmíðaðri innréttingu, frístandandi tvöfaldur ísskápur ásamt frístandi eldavél með háf yfir. Fínn borðkrókur, gluggar á þrjá vegu. Flísar á gólfi.
Barnaherbergi 1: Inn af eldhúsi er herbergi sem ekki er inn á upprunalegri teikningu. Bjart með harðparketi á gólfi.
Stofa / borðsstofa: Harðparket á gólfi, hljóðdempandi plötur á vegg í borðsstofu, úr stofunni er útgengt á skjólríkar suðursvalir.
Bílskúr: 18.8 fm2 , heitt og kalt vatn.
Neðri hæð: Hringstigi liggur úr holi niður á neðri hæð. Sjónvarpshol: Rúmgott, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, stór fataskápur. Parket á gólfi. Útgengt á rúmgóða timbur verönd sem snýr til suðurs.
Barnaherbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi.
Barnaherbergi 3: Parket á gólfi.
Barnaherbergi 4: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagðir veggir og gólf, innrétting undir vaski, rúmgóður háskápur ásamt skápum á vegg, handklæðaofn, sturta með innbyggðum blöndunartækjum, baðkar, salerni.
Nánari upplýsingar veita:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.