Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna til sölu: Víkurás 8 með stæði í bílastæðahúsiMjög vel skipulögð og björt 2ja herbergja íbúð á 3. og efstu hæð í í álklæddu fjölbýlishúsi. Uppgefin heildarstærð eignar er 79,5m2 og þar af sérgeymsla á sömu hæð 4m2 og sérstæði í bílkjallara 21.9m2. Þessi íbúð er með aðstöðu fyrir eigin þvottavél í þvottahúsi fyrir hæðina. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru í nærumhverfi, s.s. Elliðaársdalur, Elliðavatn, Rauðavatn og Heiðmörk, Árbæjarlaug, skóli og leikskóli nærri ásamt verslunum. **Frábær fyrstu kaup - laus fljótlega**. Fasteignamat 2026 verður 54.500.000 kr.
Nánari lýsing:Forstofa: Skápur hvítfilmaður fyrir yfirhafnir. Eldvarnarhurð inn í íbúðina.
Eldhús: Opið við stofu. Endurnýjuð svört Ikea innrétting með eyju með setuplássi. Helluborð, bakaraofn, Tengi fyrir frístandandi ísskáp. Gluggi.
Stofa: Björt stofa með tveimur gluggum og útgengi út á góðar útsýnissvalir, opin við eldhús og eru því í alrýminu 3 gluggar og svalahurð með gleri sem gefur einstaka birtu. Útsýni er til allra átta. Rúmgóðar svalir.
Baðherbergi: Nett
hvít innrétting undir handlaug, hilla/skápur með rennihurð með spegli. Gólffest salerni, baðkar með sturtublöndunartæki og sturtugleri ofan á baðkari. Lakkaðar flísar í hólf og gólf.
Herbergi Rúmgott og bjart með góðum skáp hólf í gólf. Útsýni.
Þvottahús: Tengi fyrir þvottavél er í þvottahúsi á 3.hæð, en jafnframt er sameiginlegt þvottahús á 2.hæð með tækjum í sameign.
Sérgeymsla: er 4 fm er á sömu hæð og íbúðin. Hillur og málað gólf.
Hjóla og vagnageymsla: Sameiginleg og er á jarðhæð.
Einkabílastæði í læstu bílastæðahúsi: Næst innsta bílastæðið í bílastæðahúsi. Rafdrifin innkeyrsluhurð og einnig er útidyrahurð í húsið. þvottaaðstaða fyrir bíla.
Sameign: Sameiginleg bílastæði eru á lóðinni, gróinn garður.
**SÆKTU SÖLUYFIRLIT HÉR****SKOÐAÐU EIGNINA BETUR MEÐ EÐA ÁN HÚSGAGNA Í ÞRÍVÍÐRI SÝN (3D SEM GENGUR UM EIGN)**Athugasemdir/gallar/ágallar eignar:Móða í gleri í svefnherbergi.
Allar nánari upplýsingar veita Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur, s. 897 7712 email gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður, s. 822 5124, email gylfi@remax.is