Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Sómatún 3 íbúð 101 - Vel skipulögð 3-4ra herbergja íbúð á neðri hæð í fjórbýli í Naustahverfi - stærð 96,1 m²
** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning ** Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu sem nýtist sem svefnherbergi.Forstofa er með flísum á gólfi og spónlögðum eikar skáp.
Eldhús er með spónlagðri eikar innréttingu með innfelldum ísskáp og frysti og ljósum flísum á milli skápa. Innfelld lýsing í lofti og parket á gólfi.
Stofa og eldhús eru í opnu rými. Þar eru gluggar til þriggja átta, innfelld lýsing í lofti og parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á steypta suður verönd, skráð 12,0 m² að stærð.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og spónlögðum eikar fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,4 og 13,1 m²
Geymsla er innréttuð og nýtt sem svefnherbergi í dag. Þar er parket á gólfi og spónlagður eikar fataskápur. Stærð geymslu er skv. teikningum 8,5 m².
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni og walk-in sturtu.
Þvottahús er með flísum á gólfi og bekk með stálvask.
Annað:- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Innfelld lýsing er í lofti í eldhúsi, stofu og á gangi.
- Hlutdeild í sameiginlegu tæknirými/geymslu tilheyrir eigninni
- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.