Í einkasölu á FRÓN fasteignamiðlumn.
Rúmgóð 3ja - (4ra) herbergja, 101,1 fm, íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi ásamt 42,9 fm bílskúr við Skúlagötu. Samtals 144 fm.
Aðstaða sem tilheyra sameign, eins og afnot af gufubaði, heitum potti og æfingatækjum í og samkomusalur.
Íbúðinn skiptist í tvö svefnherbergi, hol, stofu og eldhús, sér þvottahús og geymsla inn í íbúð. Yfirbyggðar svalir í austur.
Öll þjónuta sem er í gögnufæri, s.s. dagvöruverslannir, matsölustaðir og önnur þjónusta eins og mötneyti.
Íbúð er ætluð fyrir 60 ára og eldri. Afhending er 1. okt., n.k. eða fyrr
Nánari lýsing:
Gengið er inn í íbúð í forstofu með ljósu parketi, þar eru forstofuskápar og hengi. Þar opnast við rúmgóða stofu með ljósu parketi.
Gluggi í norður í stofu, með 45° útskoti sem gefur mikla birtu. Gott útýni út á Faxaflóann, yfir höfnina, strandlegninuna og að Esjunni.
Eldhús er með ljósum innréttingum. Borstofa og hol með parketi með glugga út á Faxaflóa.
Herbergi með dúk á gólfi með nýjum fataskáp. Gluggar eru í tvær áttir, í norður og í austur.
Gengt út á svalir sem eru yfirbyggðar af með gleri sem má opna. Þær eru flísalagðar.
Nýlega uppgert bað með flísalögu gólfi og á vegg. Upphengt klósett og ný innrétting með skápum. Sturtuklefi er úr hertu öryggis gleri og gólf er jafn hátt og í baðherberginu.
Sér þvottahús og geymsla inn í íbúð. Þar er frysskápur.
Bílskúr er sérstæður, 42,9 fm með sér geymsluplássi og vatni og rafmagni.
Einkabílastæði fyrir húsið er neðan við hús og ofan sem tileyra íbúum hússins.
Á fyrstu hæð í sameign er ,,baðhús" með heitum potti, sturtum og sánaklefa. Einnig er þar búningsklefar, æfingatæki með tilheyrandi. Samkomusalur á annarri hæð er í eigu sameignar, með eldhúsi, snyrtingu og tilheyrandi. Aðgangur er að þvottaþurrkaðstöðu. Tvennar svalir tilheyra sameign á ,,þakhæð" hússins, í norður og suður. Þaðan er mikið útsýni, yfir flóann og borgina. Aðstaða er fyrir þvott á bílum í bílageymslu fylgir íbúð en ekki stæði fyrir bíl. Burðakerra til afnotar fyrir íbúa úr bílageymslu.