Þriðjudagur 21. apríl
Fasteignaleitin
Skráð 27. maí 2025

Skipholt 1(505)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
98.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
122.900.000 kr.
Fermetraverð
1.245.187 kr./m2
Fasteignamat
80.900.000 kr.
Brunabótamat
59.200.000 kr.
Mynd af Jórunn Skúladóttir
Jórunn Skúladóttir
Lögg. fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2522309
Landnúmer
103024
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
5
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýjar
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Haborg kynnir: Skipholt 1 ný endurbyggt hús, aðalinngangur við Stórholt. Íbúð 505 á efstu hæð með lofthæð um 3,40 m, Rúmgóða 3ja herbergja íbúð í fallegu enduruppgerðu lyftuhúsi í útjaðri miðborgarinnar. Eignin er mjög heillandi staðsett í boganum sem setur mikinn svip á bygginguna. Inngangur frá svalagangi. Forstofa með góðum skápum, Tvö svefnherbergi 10,7 fm og 12,8 fm. Stórt bjart alrými með útgengi á 4,1 fm bogadregnar suðursvalir. Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Harðparket á gólfum og innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Sjálf íbúðin er 88,9 fm og geymsla í kjallara 9,8 fm. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð. Örstutt göngufæri í matvöruverlslun og niður á Hlemm sem er að umbreytast í grænt og vænt almenningsrými.
Sjá heimasíðu verkefnis:

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn lögg.fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is

Húsið:
Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Í reisulegu húsi þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar 34 heillandi íbúðir og tvö atvinnurými. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð hússins auka lífsgæði allra íbúa, en þar er sólríkt og magnað útsýni til sjávar og fjalla.
HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Allar íbúðir afhendast fullbúnar með 8mm harðparketi frá Agli Árnasyni , og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG.

Hönnun: Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél) Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Garðurinn: Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.
Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.
Hér er allt sem þarf fyrir nútímalegan miðborgarlífsstíl. Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni. Íbúar í Skipholti eiga rétt á íbúakorti og mega þá leggja í gjaldskyldum stæðum á svæði H á myndinni (sjá mynd í myndasafni) auk þess sem fullt er af ógjaldskyldum stæðum td í Skipholtinu. Íbúakortið kostar kr. 1.400- á mánuði fyrir rafmagns og vetnis bifreiðar, en kr. 2.800 fyrir aðrar tegundir bifreiða.
 
 Sjá upplýsingar á heimasíðu verkefnisins https://skipholt1.is/ . Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% þegar það verður lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (10)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langholtsvegur 81
Langholtsvegur 81
104 Reykjavík
69.7 m2
Fjölbýlishús
312
859 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Tröllakór 14
Opið hús:21. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Tröllakór 14
Tröllakór 14
203 Kópavogur
83.3 m2
Fjölbýlishús
211
839 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 103A
Bílastæði
Skoða eignina Hraunbær 103A
Hraunbær 103A
110 Reykjavík
107.1 m2
Fjölbýlishús
312
886 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 13
Bílastæði
Opið hús:25. apríl kl 12:00-12:30
Skoða eignina Smyrilshlíð 13
Smyrilshlíð 13
102 Reykjavík
85.9 m2
Fjölbýlishús
312
895 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin