Laugardagur 13. júní
Fasteignaleitin
Opið hús:18. júní kl 17:00-17:30
Skráð 13. júní 2026

Naustabryggja 55

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
166.4 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
630.409 kr./m2
Fasteignamat
95.950.000 kr.
Brunabótamat
86.320.000 kr.
Mynd af Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2251541
Landnúmer
186157
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
upprunalegir
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já, tvennar svalir
Upphitun
ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Skipulagi íbúðarinnar hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum. Í eignaskiptasamningi segir að íbúðin geti verið fjögurra til fimm herbergja.
Gallar
Flísar á svölum eru farnar að brotna upp. Skv., eiganda þá er húsfélagið að skoða málið og farið verður í viðgerð á flísum á svölum fljótlega. 
Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og Fasteignasalan TORG kynnir glæsilega 3 til 4 herbergja íbúð með fallegu sjávarútsýni og bílskúr við Naustabryggju 55

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 166,4 m2 og þar af er bílskúr 20,5 m2
Íbúðin er staðsett á 1. hæð í lyftuhúsnæði byggðu árið 2000 og stendur næst smábátabryggjunni og hefur íbúðin því óhindrað sjávarútsýni yfir bryggjuna og í átt að Viðey og Hamrahverfinu í Grafarvogi. Komið er inn í forstofu, en til vinstri er baðherbergi sem hefur nýlega verið uppgert. Til hægri er rúmgott hjónaherbergi, en það var áður tvö herbergi sem nú er búið að sameina í eitt. Frá forstofu gangi er komið inn í stóra og bjarta borðstofu- og stofu með gólfsíðum gluggum með einstöku útsýni í átt að smábátabryggjunni og út að sjó. Þaðan er útgengt út á svalir sem snúa í norð-vestur. Eldhús og þvottahús er staðsett til hliðar við borðstofu en frá eldhúsi er útgengt út á suð-vestur svalir. Frá stofu er stigi niður á neðri hæð, þar sem er sjónvarpshol og rúmgott herbergi með fataherbergi inn af. Það er innangengt í bílskúrinn frá sameign, en hann er með mikilli lofthæð og því góðu millilofti sem er notað sem geymsla.

Nánari lýsing: 
Forstofa/gangur: Parket á gólfi sem nýlega er búið að pússa upp og gott skápapláss.
Baðherbergi: nýlega endurnýjað, flísar á veggjum og gólfi, upphengt salerni, "walk-inn" sturta með nýlegum blöndunartækjum og falleg innrétting.
Hjónaherbergi: mjög rúmgott (teiknað sem tvö svefnherbergi) með parketi á gólfi og stórum fataskápum, tveir inngangar og útgangur út á svalirnar sem snúa í suð-vestur.
Stofur: parket á gólfi, borðstofa er rúmgóð og gólfsíðir gluggar veita góða birtu og einstakt sjávarútsýni. Útgengt út á rúmgóðar svalir með óhindruðu sjávarútsýni frá stofu.
Eldhús: ljós innrétting með góðu skápaplássi, nýlegt span helluborð og parket á gólfi, útgangur út á góðar "grill" suð- vestur svalir.
Þvottahús: Inn af eldhúsinu með innréttingu fyrir þvottavél- og þurrkara og mjög góðu skápaplássi.
Neðri hæð:
Gengið er niður teppalagðan stiga frá stofu, á neðri hæð íbúðarinnar.
Sjónvarpshol: rúmgott með parketi á gólfi.
Herbergi II: parketi á gólfi og fataherbergi inn af (teiknað sem geymsla).
Bílskúr: Sjálfvirkur hurðaropnari, innangengt úr sameign, heitt og kalt vatn, hátt til lofts og gott milliloft sem notað er sem geymsla. 
Sameiginleg vagn- og hjólageymsla er á jarðhæð hússins.  

Sameiginleg bílastæði eru við húsið og fallegar gönguleiðir meðfram bryggjunni í átt að Vogahverfi og inn í Hamrahverfið í Grafarvogi. Vel rekið húsfélag og snyrtileg og vel hirt sameign.
- Skv. teikningum gæti íbúðin auðveldlega verið með fjórum svefnherbergjum og góðri stofu.
Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð með fallegu sjávarútsýni sem vert er að skoða. 

Nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:  Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.  Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. 
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.  Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og  ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.  Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.  Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.



 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/04/201431.250.000 kr.34.500.000 kr.166.4 m2207.331 kr.
04/02/201028.400.000 kr.30.000.000 kr.166.4 m2180.288 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2000
20.5 m2
Fasteignanúmer
2251541
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
07
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.020.000 kr.

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Geislaskarð 2
3D Sýn
Skoða eignina Geislaskarð 2
Geislaskarð 2
221 Hafnarfjörður
108 m2
Fjölbýlishús
413
727 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Skoða eignina Sæviðarsund 9
3D Sýn
Opið hús:16. júní kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sæviðarsund 9
Sæviðarsund 9
104 Reykjavík
98.7 m2
Fjölbýlishús
312
799 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Ciudad Quesada Spánn
Ciudad Quesada Spánn
Spánn - Costa Blanca
78 m2
Fjölbýlishús
322
478 þ.kr./m2
37.300.000 kr.
Skoða eignina Laugarnesvegur 79
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:16. júní kl 16:30-17:00
Laugarnesvegur 79
105 Reykjavík
95.2 m2
Fjölbýlishús
312
723 þ.kr./m2
68.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin