Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna vönduð og glæsileg fullbúin 3ja herbergja 140,6 fm steypt parhús með innbyggðum bílskúr (30,8 fm) og heitum potti við Báruklöpp í Garði, Suðurnesjabæ.
Um er að ræða Báruklöpp 6, 8 og 12. (Allar myndir að innanverðu eru af Báruklöpp 12.)
ATH. Húsin eru tilbúin til afhendingar. Skoða myndband af eigninni. Allar innréttingar og hurðar eru sérsmíðaðar frá Grindinni ehf. og skilast með vönduðum eldhústækjum frá Siemens, þ.á.m. innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Þau skilast fullmáluð og með hágæða gólfefnum. Gólfhiti er í öllum gólfum og hljóðvistardúkur er í loftum. Akrýlsteinn er á borðplötum. Nánari upplýsingar eru í skilalýsingu:
Biðja um skilalýsingu. Húsin eru vel skipulögð, með stórri stofu og gólfsíðum gluggum, þau skiptast í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi ásamt bílskúr.
Nánari lýsing:- Húsin eru staðsteypt og gluggar og útidyrahurðir eru úr timbri/áli.
- Húsin eru klædd að utan með tveggja millimetra þykkri standandi álklæðningu.
- Lóð er fullfrágengin með torfþökum, steyptu plani og stéttar eru með snjóbræðslulögn. Sólpallur er með heitum potti á lóð. Sorptunnuskýli fylgja.
Umhverfi:Sami byggingaraðilinn hefur byggt allar eignir við götuna sem gerir það að verkum að ásýnd götunnar er afar snyrtileg og samræmd í útliti. Óspillt náttúra er allt um kring og stutt í alla þjónustu og ýmsa útivist.
Byggingaraðili:Bragi Guðmundsson ehf. Traustur verktaki með áratuga reynslu.
*Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður lagt á sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignanna.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.