Sunnudagur 6. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 18. júní 2025
Deila eign
Deila

Víkurbakki 12

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
257.2 m2
11 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
485.614 kr./m2
Fasteignamat
113.550.000 kr.
Brunabótamat
103.000.000 kr.
Bjarklind Þór
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1969
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2046890
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Búið að skipta um rafmagnsleiðslur í kjallara
Gluggar / Gler
Búið að skipta um rúður á efri hæð
Þak
Sagt í lagi, huga þarf að rennum
Svalir
Búið að byggja yfir svalir og einangra að hluta
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Engar fyrirhugaðar framkvæmdir. Það er ekki húsfélag né hússjóður í raðhúsalengjunni.
Gallar
Að sögn seljanda:
Móða í gleri í einni rúðu í stofunni og móða í nokkrum rúðum á efri hæð. Það þyrfti að skipta um þéttilista á glugga í forstofuherbergi það hefur gerst að leki inn í verstu rigningaveðrum (ekkert samt nýlega). Parket er orðið lélegt í stofunni. Þarf aö skipta um ofn í miðherberginu á efri hæð og vantar rofa/krana á eitt herbergið. Þá er rými uppi (byggt yfir svalir) sem er einangrað að hluta og óupphitað.
Flugeldi fór í klæðningu að framan og skaðaði klæðningu lítillega en fór ekki í gegnum klæðningu.
Bílskúrshurðin og ruslakompuhurðin eru orðnar lélegar.
Sjá nánar í ástandsyfirlýsingu seljenda.
Borgir  fasteignasala kynnir eignina Víkurbakki 12, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 204-6890 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð er 257.2 fm og er um að ræða raðhús á þremur hæðum þ.e. tvær hæðir og kjallari auk innbyggðs bílskúrs. Húsið er klætt með steniklæðningu að utan.
Bílskúr er um 20-22 fm og er hann notaður sem geymsla sem og óinnréttað rými sem er 31 fm á efri hæð en væri hægt að breyta í íbúðaraðstöðu.
Hús sem býður upp á mikla möguleika.

Fyrirhugað fasteignamat 2026 kr. 127.900.000,-

Nánari upplýsingar:
Fasteignasalan Borgir, s. 5882030, borgir@borgir.is 
Bjarklind Þór s. 6905123, bjarklind@borgir.is 

Nánari lýsing eignar:
Neðri hæð: Forstofa, forstofuherbergi, stofa, eldhús, gestasalerni og þar er útgengt í garð með palli.
Forstofa: Komið er inn í forstofu þar sem nýlega er búið að skipta um efni í lofti. Inn af forstofu er rúmgott herbergi og þaðan er hringstigi niður í herbergi í kjallara.
Gangur/Hol: Lítið hol og þar er fallegt nýlega endurnýjað gestasalerni.
Stofa: Rúmgóð stofa um 40 fm, nokkrar tröppur eru niður í stofuna. Búið er að loka fyrir gat vegna arins en eftir stendur burðarbiti og því hægt að koma nýjum arin fyrir.  Gengið er út í skjólgóðan garð frá stofu og þar er pallur, garðhýsi með nýlegum gluggum og litlum geymsluskúr. 
Eldhús: Góð eldhúsinnrétting og opið er milli eldhúss og stofu. Uppþvottavél í vinnuhæð og mustang flísar eru á gólfi. Útgengt er í garðhýsi úr eldhúsi. Hurð úr eldhúsi og stigi sem liggur annars vegar niður í kjallara og hins vegar upp í bílskúr.
2023 var skipt um alla ofna í kjallara, eldhúsi, stofu, forstofu og forstofuherbergi. 

Efri hæð: Baðherbergi og 4 svefnherbergi parketlögð.
Baðherbergi : er flísalagt, með eldri innréttingu og baðkari.
Hjónaherbergi: Er rúmgott eða um 16 fm. Hurð er á herberginu út á stórar yfirbyggðar svalir sem tengja mætti bílskúrnum og eða gera tvö herbergi úr plássinu.
Herbergi: Tvö herbergi sem snúa í vestur eru rúmgóð eða um 10 fm með innbyggðum skápum og á milli þeirra lítið herbergi sem mætti líka nota sem fataherbergi. Úr öðru herberginu er útgengt út á 12 fm vestursvalir með góðu útsýni. 
2021 var skipt um allt gler í gluggum á efri hæð svalarmegin.

Kjallari: Stigi liggur úr eldhúsi niður í kjallara. Þar er kyndiklefi, þvottahús, lítil eldhúsinnrétting í 11 fm rými. Lítið baðherbergi með salerni og vaski og síðan sér rými með sturtu. Þar er einnig 2-3 manna sauna sem virkar vel. Tekið í gegn fyrir ca 5 árum. Þá er rými sem nýta mætti sem æfingaherbergi/geymslu og er um 11 fm. Stigar eru í báða enda kjallara upp á hæðina. Nýtt ofnakerfi er í kjallara og búið að skipta um rafmagnsleiðslur. Kjallarinn er um 38 fm að stærð,

Umhverfi: Stutt er að fara í Elliðaárdalinn og njóta fallegrar náttúru. Þá er stutt í skóla, leikskóla, verslanir, heilsugæslu og ýmsa aðra þjónustu s.s. strætisvagna og kvikmyndahús.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fífusel 20
Bílskúr
Opið hús:10. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Fífusel 20
Fífusel 20
109 Reykjavík
241.9 m2
Raðhús
925
479 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Skoða eignina Kambasel 47
Bílskúr
Opið hús:09. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Kambasel 47
Kambasel 47
109 Reykjavík
218.7 m2
Fjölbýlishús
624
546 þ.kr./m2
119.500.000 kr.
Skoða eignina Heiðarsel 23
3D Sýn
Opið hús:08. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Heiðarsel 23
Heiðarsel 23
109 Reykjavík
197.3 m2
Raðhús
614
633 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Kambasel 55
Skoða eignina Kambasel 55
Kambasel 55
109 Reykjavík
223.9 m2
Raðhús
524
558 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin