Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Langahlíð 20 - Mikið endurnýjað 6-7 herbergja einbýlishús á pöllum og með stakstæðum bílskúr með tveimur innkeyrsluhurðum - Heildarstærð 249,7 m², þar af er bílskúr skráður 48,0 m²
Húsið er skráð steypt, íbúðarhús árið 1968 og bílskúr 1978
Örstutt í leik- og grunnskóla og á íþróttarsvæði Þórs
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Aðalhæð, 133,5 m²: Forstofa, eldhús, stofa og borðstofa í alrými og sólstofa. Gengið er upp 5 þrep á herbergisgang þar sem eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Jarðhæð, 68,2 m²: Forstofa, gangur, þvottahús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymsla.
Forstofurnar eru tvær, aðalinngangurinn er inn á efri hæðina og þar er harðparket á gólfi, gólfhiti og tvöfaldur skápur. Annar inngangur er inn á neðri hæðina með flotuðu gólfi og gólfhita.
Eldhús var endurnýjað árið 2017. Vönduð hvít innrétting með mjög góðu skápa- og bekkjarplássi. Tveir ofnar Ísskápur, frystiskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. Rúmgóð borðstofa með stórum glugga. Harðparket er á gólfi og gólfhiti.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými þar sem harðparket er á gólfi og stórir gluggar til tveggja átta. Úr stofunni er gengið inn í sólstofu og það út á verönd.
Sólstofa var byggð við húsið til suðvesturs. Þar eru flísar á gólfi, gólfhiti og rennihurð út á stóra verönd með timbur skjólveggjum.
Steyptur teppalagður stigi er á niður á neðri hæðina.
Baðherbergin eru tvö, bæði nýlega endurnýjuð. Á efri hæðinni eru flísar á gólfi og þiljur á hluta veggja, dökk innrétting og speglaskápur, upphengt wc, baðkar með sturtu tækjum og opnanlegur gluggi. Hiti er í gólfi og er honum stýrt í gegnum handklæðaofn.
Baðherbergi á neðri hæð gráum flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni, walk-in sturtu og opnanlegum glugga.
Svefnherbergin eru fimm, þrjú á efri hæðinni og tvö á neðri hæðinni. Harðparket er á gólfum í þremur og fataskápar. Í herbergjum á neðri hæðinni er grátt teppi á gólfum og nýlegar hvítar innihurðar.
Þvottahús hefur verið endurnýjað, þar er falleg hvít innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og gott skápa- og bekkjarpláss. Gólf er flotað og með gólfhita.
Tvær geymslur, önnur innan íbúðar á bakvið fatahengi á neðri hæð, utangengt er í hina um litla hurð undir aðalinngangi.
Bílskúrinn er stakstæður og skráður 48,0 m² að stærð. Tvær nýlegar rafdrifnar innkeyrsluhurðar, nýleg innrétting og nýlegur blástursofn. Sér gönguhurð er á langhliðinni og flísar á gólfi. Fyrir framan er steypt tvöfalt bílaplan og við hliðina er annað plan með möl í. Einnig er steypt bílaplan fyrir framan íbúðarhúsið fyrir einn bíl.
Suðvestur verönd með timbur skjólveggjum.
Annað
- Húsið hefur verið einangrað að utan og klætt með steni plötum.
- Hluti af gleri hefur verið endurnýjað.
- Allar neysluvatnslagnir innan íbúðar hafa verið endurnýjaðar
- Gólfhiti er í forstofum, eldhús, stofu og borðstofu, sólstofu, baðherbergjum og þvottahúsi.
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Steypt þak yfir bæði íbúðarhúsi og bílskúr.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.