Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Fossagil 9 - Vel skipulagt 4-5 herbergja einbýlishús á einni hæð og með innbyggðum bílskúr í Giljahverfi - stærð 173,0 m²
Húsið er skráð steypt og með byggingarár 2003.
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum skáp og skúffueiningu með spegli. Hiti er í gólfi.
Eldhús, vönduð tvílit innrétting, spónlögð og sprautulökkuð og með flísum á milli skápa. Rúmgóður borðkrókur og flísar á gólfi.
Stofa og gangur eru með parketi á gólfi. Í stofu eru loft tekin upp og með innfelldri lýsingu. Hurð er út úr stofunni út á verönd.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, vönduð innrétting, upphengt wc, baðkar, flísalögð sturta, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Hiti er í gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum. Stærð herbergi er skv. teikningum 9,4 , 9,7 og 12,9 m². Geymsla inn af bílskúr hefur verið notuð sem fjórða svefnherbergið, þar er dúkur á gólfi og gluggar til tveggja átta.
Þvottahús er á milli íbúðar og bílskúrs, þar eru flísar á gólfi og hvít sprautulökkuð innrétting með skolvaska. Hurð er út úr þvottahúsinu á timbur verönd með heitum potti og þvottasnúrum. Fellistigi er í þvottahúsinu upp á geymsluloft sem er yfir hluta af íbúðarhúsi.
Bílskúr er rúmgóður, með flísum á gólfi og hvítri innréttingu og skápum. Rafdrifin innkeyrsluhurð og sér gönguhurð. Inn af bílskúrnum er geymsla/herbergi með dúk á gólfi, gólfhita og tvöföldum skáp.
Geymsluloft er yfir hluta af bílskúr og geymslu, annars eru loft tekin upp í bílskúrnum.
Annað
* Innréttingar í eldhúsi, baðherbergi, forstofu og fataskápar er spónlagt með kirsuberjaviði og sprautulakkað.
* Fyrir framan er steypt bílaplan og með hitalögnum í hluta.
* Verandir eru beggja megin við húsið og á bakveröndinni er heitur pottur/skel.
* Mjög gott geymslupláss.
* 3ja fasatengill er í bílskúrnum og rafhleðslustöð.
* Eignin er laus til afhendingar um miðjan desember 2026
* Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.