VEFARASTRÆTI 40, 270 MOSFELLSBÆBjört, falleg og vel skipulögð 4-ra herbergja endaíbúð á annarri hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Vefarastræti 40 í Mosfellsbæ.
Gluggar á þrjá vegu með fallegu útsýni.
Birt stærð eignar er 98,3 fm., þar af er 5,6 fm. sérgeymsla í sameign. Sérstæði í bílageymsluhúsi þar sem gert er ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
ATH. EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR. VINSAMLEGA BÓKIÐ SKOÐUN.Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Gangur með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús og stofa eru í opnu rými með útgengi á svalir í suðausturátt með fallegu útsýni.
Í eldhúsi er L-laga innrétting frá AXIS með viðaráferð. Lýsing undir efri skápum. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með.
Þrjú svefnherbergi, öll parketlögð með skápum.
Baðherbergi/þvottaherbergi er með flísum á gólfi, innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og "walk-in" sturtu. Tengi og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Hiti í gólfi.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu, merkt 01B02, fylgir eigninni.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.
Fyrirhugað fasteignamat 2025 er 69.450.000,- kr.
Falleg staðsetning, rétt við Helgafellsskóla. Stutt í almenningssamgöngur og vinsæl útivistarsvæði.ÝTTU HÉR TIL AÐ SENT SÖLUYFIRLITNánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is