** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Laust strax - - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** FASTMOS kynnir: Glæsileg, ný, fullbúin 58,5 m2, 2ja herbergja endaíbúð með séinngangi á jarðhæð við Hverfisgötu 100 í miðbæ Reykjavíkur. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning með gólfefnum, vönduðum innréttingum og innbyggðum eldhústækjum.
Eignin skiptist í svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu. Sérgeymsla fylgir eigninni. Eigninni fylgir sérafnotaflötur á lóð í suðurátt. Íbúð merkt 103 er skráð 58,5 m2, þar af íbúð 54,1 m2 og geymsla 4,3 m2. Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Eldhús og stofa er í opnu björtu rými með harðparketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg innrétting með innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni og helluborði. Úr stofu er gengið út á sérafnotaflöt í suðurátt.
Svefnherbergi er með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni og "walk-in" sturtu. Gert er ráð fyrir þvottavél í innréttingu. Gluggi er á baðherbergi.
Sérgeymsla er á lóð 4,3 m2.
Eldhúsinnrétting, baðinnrétting og fataskápar eru frá Voke3 (söluaðili er Voke-III á Íslandi ehf). Eldhústæki frá Electrolux, þ.e. ofn, helluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur. Harðparket er á gólfum nema á baðherbergjum/þvottaherbergjum en þar eru flísar.
Frágangur utanhúss: Sameign, stigagangur og lyftuhús ásamt útveggjum og burðarveggjum fyrstu hæðar er úr járnbentri steinsteypu. Ofan á steypta plötu yfir fyrstu hæð leggjast timbureiningar fyrir 2., 3. og 4. hæð. Fyrsta hæð er einangruð að innan en á hæðum 2-4 eru einangraðar timbureiningar klæddar viðhaldsléttri álklæðningu að utan. Timbur/ál gluggar með hljóðeinangrandi gleri sem snýr að Hverfisgötu. Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af brunabótamati).
Hluti verksins er endurgerð eldri húsa þar sem efri hæðir eru teknar niður en jarðhæðin endurgerð og nýtt áfram. Ofan á steypta jarðhæð koma 3 hæðir og eru þær úr timbureiningum. Stigahús og lyftustokkur var steypt upp allar hæðir áður en timbureiningar voru reistar og virkar sem burðarvirkiskjarni sem styrkir bygginguna.
Verð kr. 64.900.000,-