Fimmtudagur 22. október
Fasteignaleitin
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 22. okt. 2026

Hvassaleiti 133

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-103
227 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
177.500.000 kr.
Fermetraverð
781.938 kr./m2
Fasteignamat
149.250.000 kr.
Brunabótamat
104.600.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1962
Garður
Svalir
Pallur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2031994
Landnúmer
107323
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagt í lagi
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað 6-7 árum
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallegt, vandað og vel viðhaldið 6 herbergja 227,0 fermetra raðhús í raðhúsalengju á frábærum og fjölskylduvænum stað við Hvassaleiti 133 í Reykjavík. Í húsinu eru 5 svefnherbergi, forstofa, hol, gestasnyrting, baðherbergi, stór stofa (rúmar vel setustofu og borðstofu), eldhús, þvottaherbergi, geymsla og bílskúr. Húsið er afar sjarmerandi og bjart með stórum gluggum til suðurs í stofu.  Gengið er á stórar svalir frá stofu og frá hjónaherbergi er útgengi á verönd og tyrfðan bakgarð með fallegum gróðri. 

Þakið endurnýjað fyrir u.þ.b. 6 árum síðan.  Auk þess var aðal baðherbergi endurnýjað fyrir u.þ.b. ári síðan á afar smekklegan máta.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað og rólegri götu við Hvassaleiti í næsta nágrenni við leikskóla (Austurborg), grunnskóla (Hvassaleitisskóla) og menntaskóla (Verzlunarskóla Íslands). Stutt er í alla verslun og þjónustu (t.d. Kringluna og Austurver). Eignin er miðsvæðis og nálægt helstu stofnæðum höfuðborgarinnar. Frábærar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni við Fossvogsdalinn og Öskjuhlíð.

Nánari lýsing:

Aðalhæð:
Forstofa: Með flísum á gólfi og fatahengi.
Gestasnyrting: Með flísum á gólfi, salerni, vask og glugga til norðurs.
Stofa: Er stór með fallegu parketi á gólfi og stórum gluggum til suðurs. Sjarmerandi arinn er í stofu. Gegnið er upp í stofu um nokkur þrep frá holi. Útgengi á svalir. Stofa er opin við borðstofu.
Svalir: eru stórar og snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Með korki á gólfi og fallegri viðar eldhúsinnréttingu. AEG eldavél með keramik helluborði, flísar á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur og gluggi til norðurs.
Svefnherbergi I: Er stórt og er staðsett á aðalhæð hússins. Hefur verið nýtt sem sjónvarpsstofa en einnig væri hægt að nýta sem sér borðstofu. Parket á gólfi og gluggar til norðurs.

Neðri hæð: Gengið niður steyptan parketlagðan stiga.
Gangur: Með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Hefur verið endurnýjað nýlega á afar smekklegan máta. Flísar á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með gleriþili og innrétting við vask. Upphengt salerni, handklæðofn og gluggi til suðurs.
Svefnherbergi II (hjónaherbergi): Er rúmgott og með parketi á gólfi. Góðir skápar á heilan vegg og gluggar til suðurs. Útgengi á verönd/bakgarð hússins frá hjónaherbergi.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi og glugga til suðurs.
Svefnherbergi IV: Með parketi á gólfi og glugga til suðurs.

Jarðhæð: Gengið niður örfá þrep frá svefngangi neðri hæðar.
Þvottaherbergi: Er mjög rúmgott, með epoxy á gólfum og góðri innréttingu. Gott skápapláss og upphækkun undir þvottavél og þurrkara. Vinnuborð og vaskur.
Geymsla: Er staðsett inn af þvottaherbergi. 
Svefnherbergi V: Með teppi á gólfi og gluggum til norðurs.
Neðri forstofa: Er staðsett við hlið svefnherbergis V. Gengið inn undir útitröppum/aðalinngangi.

Bílskúr: Er upphitaður, með heitu/köldu vatni og vaski.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fossvogsvegur 8
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Fossvogsvegur 8
Fossvogsvegur 8
108 Reykjavík
210,8 m2
Fjölbýlishús
524
1139 þ.kr./m2
240.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 26
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Fossvogsvegur 26
Fossvogsvegur 26
108 Reykjavík
242 m2
Fjölbýlishús
524
1384 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 18
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Fossvogsvegur 18
Fossvogsvegur 18
108 Reykjavík
241,8 m2
Fjölbýlishús
523
1385 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 10
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Fossvogsvegur 10
Fossvogsvegur 10
108 Reykjavík
233,5 m2
Fjölbýlishús
523
1435 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin