LIND fasteignasala kynnir bjarta og vel skipulagða fjögurra til fimm herbergja íbúð á 2. hæð með bílskúr í snyrtilegu fjölbýli við Hrísmóa 9 í Garðabæ. Þrjú svefnherbergi, skrifstofurými/setustofa, björt og rúmgóð stofa með fallegu útsýni þar sem m.a. Arnarnesvogurinn og Esjan blasa við. Bílskúr og geymsla eru samliggjandi og með sérinngangi. Tilvalið til að gera aukaíbúð til útleigu.
Hrísmóar eru staðsettir miðsvæðis í Garðabæ þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Leikskólinn Bæjarból er handan götunnar og Garðatorg er steinsnar frá en þar er að finna matvöruverslun, veitingastaði, hárgreiðslustofu, verslanir, apótek og læknastöð svo eitthvað sé nefnt. Flataskóli, Hofstaðaskóli og Fjölbrautaskóli Garðabæjar eru í stuttu göngufæri.
**Íbúðin er nýmáluð og laus til afhendingar við kaupsamning.**Forstofa/hol: Parket á gólfi, fataskápar.
Eldhús: Flísar á gólfi, svört innrétting með góðu skápaplássi og dökkri granítborðplötu.
Stofa: Opin og björt með parketi á gólfi og stórum gluggum. Eldhús og stofa eru í opnu rými, fallegt útsýni til vesturs.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. Útgengi á suðaustursvalir.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi, fataskápur.
Skrifstofurými/setustofa: Parket á gólfi. Var áður hluti af svölum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting með handlaug, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi, innrétting í kringum vélar.
Bílskúr og geymsla: Steypt gólf í bílskúr, heitt og kalt vatn, bílastæði fyrir framan bílskúr. Fyrir innan bílskúr er parketlögð
geymsla með sérinngangi. Rýmið býður upp á möguleika á að útbúa aukaíbúð.
ATH: Skipulag er ekki samkvæmt teikningu. Íbúðin er upphaflega teiknuð með þremur svefnherbergjum en aukarými hefur verið útbúið úr hluta svala sem hafa verið lokaðar af með svalalokun og nýttar sem hluti íbúðar.Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.