Þriðjudagur 25. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 12. júlí 2026

Miðstræti 18

EinbýlishúsSuðurland/Vestmannaeyjar-900
121.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
56.900.000 kr.
Fermetraverð
467.928 kr./m2
Brunabótamat
53.850.000 kr.
Byggt 1942
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
21844806
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Háborg Fasteignasala, Felix Hjálmarsson lögg. fasteignasali og Þórir Helgi Sigvaldason lögg. fasteignasali, kynna með stolti Fögruvelli við Miðstræti 18 í Vestmannaeyjum – einstaklega fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús á tveimur hæðum ásamt rúmgóðum bílskúr, á eftirsóttum stað í hjarta bæjarins.

Um er að ræða steinsteypt hús byggt árið 1942, alls 121,6 fm samkvæmt HMS, þar af 32,5 fm bílskúr sem byggður var árið 1983. Auk þess er mjög rúmgott ris, um 30 fm að gólffleti, sem ekki er inn í skráðum fermetrum eignarinnar. Húsið og bílskúrinn hafa verið einangruð að utan og klædd með aluzink bárujárni sem gefur eigninni fallegt og viðhaldslétt yfirbragð.

Lóðin er 283,80 m² og einstaklega snyrtileg með nýlegri og vandaðri girðingu sem skapar skjólgóðan og lokaðan garð með miklum möguleikum, m.a. fyrir heitan pott og útiaðstöðu. Eignin býður einnig upp á möguleika á að útbúa séríbúð eða stúdíóíbúð í bílskúr með sérinngangi.

Þetta er einstaklega heillandi eign á frábærum stað með fallegu útsýni og stutt í alla helstu þjónustu. Eignin getur verið laus með skömmum fyrirvara.

Endurbætur
Húsið ber með sér ágætis viðhald og hefur verið mikið endurnýjað undanfarin ár. Meðal þess sem hefur verið endurnýjað eru skólplagnir frá húsi út í götu, raflagnir og rafmagnstafla. Flestir ofnar hafa verið endurnýjaðir og forhitari settur á neysluvatn. Á miðhæð hafa gólf verið endurgerð auk þess sem loft hafa verið tekin niður og klædd á smekklegan hátt.

Nánari lýsing

Aðalhæð
Forstofa: Rúmgóð og björt með Mustang-flísum á gólfi.
Eldhús: Fallegt og endurnýjað með eikarparketi á gólfi, IKEA-innréttingu með útdraganlegum skúffum og vandaðri límtrésborðplötu. Loft hafa verið endurnýjuð og tekin niður sem gefur rýminu hlýlegt yfirbragð.
Stofa: Björt og notaleg með eikarparketi á gólfi og endurnýjuðu lofti. Fallegt rými með góðri birtu.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með gólfhita. Þar er góð sturta, salerni og tengi fyrir þvottavél.
Stigi: Teppi á stiga hefur verið endurnýjað með kókosteppi og góð geymsla er undir stiga.

Efri hæð
Herbergi I: Parket á gólfi og fataskápur.
Herbergi II: Parket á gólfi og fataskápur.
Herbergi III: Parket á gólfi.
Ris: Mjög rúmgott og skemmtilegt rými, um 30 fm að gólffleti. Sérsmíðaður stigi liggur upp í risið þar sem gólf og loft hafa verið endurnýjuð. Opnanlegur gluggi gefur góða birtu og möguleika á fjölbreyttri nýtingu.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með innangengt úr eldhúsi um eldvarnarhurð. Í bílskúrnum er salerni og sturta auk tveggja útganga; annars vegar að framan við hlið bílskúrshurðar og hins vegar út í skjólgóðan bakgarð. Auðvelt væri að útbúa þar stúdíóíbúð eða sjálfstæða aðstöðu.

Nánari upplýsingar veita:
Felix Hjálmarsson lögg. fasteignasali í síma 865-8121 eða felix@haborg.is.
Þórir Helgi Sigvaldason lögg. fasteignasali á thorir@haborg.is.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Háborg fasteignasala ehf
https://www.haborg.is

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þykkvaflöt 8
Bílskúr
Skoða eignina Þykkvaflöt 8
Þykkvaflöt 8
820 Eyrarbakki
204.4 m2
Einbýlishús
514
465 þ.kr./m2
95.000.000 kr.
Skoða eignina Laufdalur 21A
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:29. ágúst kl 14:00-14:13
Skoða eignina Laufdalur 21A
Laufdalur 21A
260 Reykjanesbær
123.5 m2
Raðhús
413
801 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Sólbakki 1
Á einni hæð
Skoða eignina Sólbakki 1
Sólbakki 1
760 Breiðdalsvík
134.7 m2
Einbýlishús
615
278 þ.kr./m2
37.500.000 kr.
Skoða eignina Skógar - Skólavegur 3
Skógar - Skólavegur 3
861 Hvolsvöllur
529 m2
Einbýlishús
4311
Fasteignamat 100.900.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin