Jason Kristinn Ólafsson og Betri Stofan fasteignasala kynnir: Laugaveg 145. Einstaklega vönduð og falleg stúdíóíbúð í risi, merkt: 0402 á 4. hæð í lyftuhúsi.
Innra skipulag. Í íbúðinni er alrými, þ.e. stofa, borðstofa og eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi í kjallara. Hurðir og innréttingar eru hvítar. Íbúðin er í raun rúmlega 54 fermetrar að grunnfleti, en skráð 41 fm.
Íbúðin: Forstofa: Forstofa er með fataskáp og parket á gólfi. Eldhús: Innrétting er frá HTH Ormsson. Tæki eru frá Electrolux eða sambærilegt. Parket á gólfi. Stofa / borðstofa: Er opin við eldhús og útgengi á svalir til suðurs. Parket á gólfi. Svefnherbergi: Innangengur úr alrými. Parket á gólfi. Nýbúið er að setja þakglugga. Baðherbergi: Baðinnrétting frá HTH Ormsson. Hreinlætistæki frá Grohe eða sambærilegt. Salerni er upphengt. Gólf flísalögð ásamt hluta baðherbergisveggja. Gólfflísar 20x20 Carnaby Street Beige frá Álfaborg og veggflísar verða 10x20 Carnival of Venezia glans frá Álfaborg. Þvottahús: Er sameiginlegt í kjallara hússins. Geymsla: Sérgeymsla er í sameign hússins merkt 0009.
Húsið: Hluti hússins er endurgerð á eldra húsi þar sem innra skipulag hússins er breytt og hæð bætt ofan á og hinn hluti hússins er viðbygging úr forsteyptum samlokueiningum. Nýlegt stigahús með pallalyftu og aðalinngang á 1. hæð og bakinngang úr garði inn í kjallara og hjólageymslu sameinar báða hluta hússins. Lítill inngarður er við baklóð hússins þar sem aðgengi er í kjallara, hjólageymslu og stigahús ásamt sorptunnuskýlum utandyra. Aðalinngangur er í nýrri viðbyggingu við austurhlið hússins. Húsið er ýmist steinað og/eða filtað og málað að utan.
Umhverfið: Laugavegur 145 er miðsvæðis og í göngufæri við alla helstu þjónustu og þá menningu sem miðbær Reykjavíkur býður uppá. Um 100m eru niður á Hlemmtorg þar sem fyrirhuguð er mikil umbylting í þeim tilgangi að stækka miðbæinn og auka menningu og afþreyingu á svæðinu. Sú breyting mun minnka almenna umferð bíla og strætisvagna við Laugaveg 145 en með fyrirhugaðri miðstöð borgarlínu mun þetta svæði verða einn helsti tengipunktur samgangna á höfuðborgarsvæðinu í framtíðinni.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
25/02/2021
19.350.000 kr.
38.900.000 kr.
41 m2
948.780 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.