Föstudagur 23. október
Fasteignaleitin
Skráð 23. okt. 2026

Kópavogsbarð 7

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
266.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
199.000.000 kr.
Fermetraverð
747.558 kr./m2
Fasteignamat
158.800.000 kr.
Brunabótamat
108.450.000 kr.
JG
Jason Guðmundsson
hdl og lgf kt 250470-5929 jason@miklaborgis
Eignalisti
Byggt 2008
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2298037
Landnúmer
204892
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
0
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Fallegt og vel skipulagt parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í botnlanga götu, með útsýni á besta stað í Kópavogi. Húsið er klætt að utan og allt umhverfi þess hið fallegasta. Bílastæði fyrir fjóra til fimm bíla á lóð.
Skipting eignar skv HMS: Íbúðarrými 235 fm og bílskúr 31 fm. 


Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Nánari lýsing

Neðri hæð:
Forstofa er flísalögð með góðum fataskápum.
Hol tengir saman öll rými neðri hæðar, næturlýsing og innfelld ljós í lofti.
Þrjú svefnherbergi eru á neðri hæð með fataskápum.
Baðherbergið er rúmgott og bjart, flísar á gólfi og veggjum, sturta, baðkar, falleg innrétting og innbyggðu salerni.
Þvottahús er með innréttingu á einum vegg, bæði efri og neðri skápar ásamt skolvaski. Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð.  Úr þvottahúsi er útgengt er út á baklóð.

Þvottahúsið er flísalagt með stórri innréttingu
Geymsla inn af þvottahúsi.

Efri hæð:
Stofan og borðstofan liggja saman í björtu rúmgóðu alrými þar sem hátt er til lofts og gólfsíðir gluggar með útsýni til sjávar. Innfelld ljós í loftum og parket á gólfi.
Rennihurð út á svalir sem snúa til suðurs með einstöku útsýni.Í eldhúsi er ljós innrétting ásamt eyju með steinplötum á borðum.  Í eldhúsi er helluborð með innfelldri viftu, undir límdur eldhúsvaskur, innbyggður tvöfaldur ísskápur og  uppþvottavél. Tveir bakarofnar í eldhúsi eru í vinnuhæð. Gott vinnu- og skápapláss. Gólfsíðir gluggar gefa fallega birtu og gott útsýni. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með sturtu og innbyggðu salerni.
Sjónvarpsherbergi er rúmgott með parketi á gólfi.
Í kjallara er rúmgott geymslurými þar sem gólfhitastýringin er og inntök.

Hellulögð og snyrtileg aðkoma með hita í plani við bílskúr. Stór og skjólgóður viðarpallur með girðingu er fremst á lóð til suðurs.

Bílskúrinn er 31 fm með flísalagt gólf, innréttingu og sjálfvirkum hurðaopnara. Lóðin virkilega snyrtileg og falleg.

Staðsetning
Eignin er frábærlega vel staðsett í suðurhlíðum Kársness í Kópavogi, beint fyrir neðan Rútstún og Kópavogslaug, leikskóli er á næstu lóð og barnaskóli Kársness í hverfinu. Stutt í göngustíga við sjávarsíðuna. 


Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kópavogsbarð 7
Skoða eignina Kópavogsbarð 7
Kópavogsbarð 7
200 Kópavogur
266,2 m2
Raðhús
624
748 þ.kr./m2
199.000.000 kr.
Skoða eignina Lautarvegur 8
3D Sýn
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Lautarvegur 8
Lautarvegur 8
108 Reykjavík
254,4 m2
Hæð
634
786 þ.kr./m2
199.900.000 kr.
Skoða eignina Huldubraut 34
Skoða eignina Huldubraut 34
Huldubraut 34
200 Kópavogur
232,2 m2
Parhús
724
817 þ.kr./m2
189.800.000 kr.
Skoða eignina Lindarberg 6
Opið hús:28. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Lindarberg 6
Lindarberg 6
221 Hafnarfjörður
268,9 m2
Raðhús
735
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin