Fimmtudagur 19. september
Fasteignaleitin
Skráð 10. sept. 2024
Deila eign
Deila

Jöfursbás 5C - íb. 502

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
135.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
144.900.000 kr.
Fermetraverð
1.070.953 kr./m2
Fasteignamat
8.200.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2530394
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
þaksvalir 65fm. + austursvalir
Lóð
2,01
Upphitun
Danfoss sameiginlegur
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
3 - Risin bygging
Kvöð / kvaðir
Ákveðnir starfsmenn fasteignasölunnar eru óbeinir hluthafar í félaginu sem selur.
***DOMUSNOVA KYNNIR * GLÆSILEG ÞAKÍBÚÐ VIÐ HAFIÐ***NÝR ÁFANGI KOMINN Í SÖLU***

Jöfursbás 5C, Reykjavík - íbúð 0502.  3ja-4ra
 herbergja þakíbúð íbúð 137,2fm. á fimmtu hæð (efstu) með óheftu útsýni til sjávar, þar af geymsla 7,5fm. (merkt 0023).  Íbúðinni fylgja tvö stæði merkt B033 og B034 í lokuðu bílahúsi.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með fallegu eldhúsi með eyju, stofu, borðstofu, tveimur baðherbergjum og tveimur svefnherbergjum með möguleika á öðru innaf stofu.  Gólfhiti í allri íbúðinni og gólfsíðir gluggar. Samkvæmt eignaskiptasamningi er þessi íbúð sögð 135,3 fm en rétt er að hún samanstendur af íbúði 129,7 fm auk geymslu 7,5 fm eða samtals 137,2 fm.
Þaksvalir 65fm. með óheftu útsýni til sjávar, þar sem íbúðin er staðsett við strandlengjuna.   Ennfremur minni svalir til austurs út frá stofu með mjög miklu útsýni
Íbúðin er með aukinni lofthæð allt að 340cm.

* SJÁVARSÝN ÓHINDRAÐ ÚTSÝNI 
* AUKIN LOFTHÆÐ Í ÍBÚÐUM - 3.4 METRAR
* SÉRSMÍÐAÐAR INNRÉTTINGAR SEM NÁ TIL LOFTS
* VANDAÐ PARKET Á GÓLFUM
* HITI Í ÖLLUM GÓLFUM
* GÓLFSÍÐIR GLUGGAR
* QUARTZ STEINN Á BORÐPLÖTUM OG UNDIRLÍMDIR VASKAR
* SNJÓBRÆÐSLUKERFI Í GÖNGUSTÍGUM MEÐ FALLEGRI NÆTURLÝSINGU
* SPENNANDI UMHVERFISSKIPULAG Í NÝJU HVERFI



Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

ALLIR KAUPENDUR OG SELJENDUR OKKAR FÁ GULLKORT DOMUSNOVA.  Handhafar gullkortsins fá allt að 35% afslátt hjá 12 samstarfsaðilum okkar:  S. Helgason,  Sérefni, Birgisson,  Módern,  Lín design, Tengi,  Nespresso,  Öryggismiðstöðin,  Ísorka,  Lýsing og hönnun, Sólar gluggatjöld og BM-Vallá. 

Lýsing íbúðar:
Forstofa 
mjög rúmgóð með stórum gólfsíðum glugga og innbyggðum stórum fataskáp 
Eldhús með eyju, góðu skápaplássi og miklu útsýni.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum
og út frá eldhúsi er stór gólfsíður gluggi og útgengi á þaksvalir.
Stofa og borðstofa með gólfsíðum útsýnisgluggum og útgeng á stórar þaksvalir.  Glæsilegir gólfsíðir gluggar með útsýni til allra átta.
Baðherbergi eru tvö og flísalögð 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.    Annað baðherbergi innaf hjónaherbergi.
Hjónaherbergi rúmgott með vönduðum fataskáp.  Baðherbergi með flísalagðri "walk-in" sturtuklefa innaf hjónaherbergi.
Svefnherbergi #2 mjög rúmgott með góðum fataskáp, gólfsíðum glugga og útsýni m.a. til sjávar
Svefnherbergi # 3 mögulegt innaf stofu
Geymsla merkt íbúðinni í kjallara
Tvö bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni
Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is 


Íbúðirnar í húsinu eru samtals 25 talsins, mjög fjölbreyttar 2-5 herbergja. Stærðir frá 60,0 fm-137,2 fm.  Næg stæði fyrir utan hús.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.


Hafið samband við eftirfarandi fasteignasala til að skoða:

Sölvi Þór Sævarsson lgfs., s. 618-0064 eða solvi@domusnova.is
Hrannar jónsson lgfs., s. 899-0720 eða hrannar@domusnova.is
Agnar Agnarsson lgfs., s. 820-1002 eða agnar@domusnova.is
Vilborg Gunnarsdóttir lgfs., s. 891-8660 eða vilborg@domusnov.is
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir lgfs.,  s. 856-3566 eða ingunn@domusnova.is
Oscar Clausen lgfs., s. 861-8466 eða oc@domusnova.is


NÁNARI LÝSING:
HÖNNUÐIR:
 Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum.  Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum. 
HÚSIÐ: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR:  Aukin lofthæð í íbúðinni, allt að 340 cm og gólfsíðir gluggar.  Vandaðar sérsmíðaðar ljósar innréttingar frá VOKE III
Quartz steinn á borðplötum í eldhúsi og frá Tecnistone á baðherbergi. Rafmagnstæki eru af vandaðri gerð frá AEG.  Span helluborð og vandaður veggofn frá AEG.  
Blöndunar- og hreinlætistæki, vaskur og salernisskál frá Duravit (Duravit D-Code og Duravit D-Neo Rimless).  Blöndunartæki eru öll í krómi og svörtu frá Grohe Essence. 
BÍLAKJALLARINN OG GEYMSLUR:  Tvö bílastæði fylgir íbúðinni og góð geymsla á geymslugangi í kjallara. 
SAMEIGINLEGUR GARÐUR:  Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. 
AFHENDING: Fyrstu íbúðir eru til afhendingar í september 2024.
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Myndir í söluyfirliti þessu eru tölvugerðar og endurspegla gæði og efnisval íbúða almennt en eiga ekki endilega við um viðkomandi eign.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2530394
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
33
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
2 - Botnplata
Fasteignanúmer
2530394
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
34
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
2 - Botnplata
DN ehf
https://domusnova.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 5
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
133.1 m2
Fjölbýlishús
322
1051 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5B - íb. 502
Bílastæði
Jöfursbás 5B - íb. 502
112 Reykjavík
133.1 m2
Fjölbýlishús
422
1051 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
135.3 m2
Fjölbýlishús
324
1071 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 26
Bílastæði
Skoða eignina Mýrargata 26
Mýrargata 26
101 Reykjavík
131.1 m2
Fjölbýlishús
423
1144 þ.kr./m2
150.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin