Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til leigu eða sölu virkilega glæsilegt og mikið endurnýjað 104,4 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum á 160,2 fermetra glæsilegri lóð við Smiðjustíg í Reykjavík.
Eignin getur hentað hvort sem er sem íbúðarhúsnæði eða skrifstofuhúsnæði.
Húsið var teiknað árið 1905 af Rögnvaldi Ólafssyni sem var fyrsti húsameístari Íslands.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á sl. 20 árum, m.a. eldhús og tæki, viðbygginga á neðri hæð sem er óskráð í Fasteignaskrá Íslands, byggðar svalir ofan á viðbyggingu, baðherbergi endurnýjað og margt fleira.
Skv. nýlegri uppmælingu á eigninni er gólfflötur neðri hæðar 49,0 fermetrar auk baðherbergis sem er 14,0 fermetrar. Efri hæð hússins mælist 49,0 fermetrar að gólffleti.
Samtals er eignin því um 112,0 fermetrar að stærð skv. þessari mælingu.
Lýsing eignar:
Forstofa, með fatahengi og með viðargólfborðum. Þaðan gengur stigi upp á efri hæð hússins.
Herbergi I, rúmgott með tveimur gluggum og með viðargólfborðum.
Hol, viðargólfborð.
Herbergi II, rúmgott með glugga og með viðargólfborðum.
Baðherbergi, með glugga og útgengi á lóð, viðargólfborð, vegghengt wc, handklæðaofn, flísalögð sturta, innrétting við vask og önnur innrétting með þvottavél og þurrkara. Baðherbergi er síðari tíma viðbygging að sögn eiganda, er um 15 fermetrar að stærð, og er ekki innifalið í skráðri stærð hússins hjá Fasteignaskrá Íslands.
Gengið er upp á efri hæð um fallegan viðarstiga í alrými sem í eru stofa og eldhús, parketlögð.
Stofa, björt og rúmgóð með mjög mikilli lofthæð í mæni og fallegum viðarbitum í loftum. Úr stofu er gengið út á svalir til suðvesturs og stórar svalir til suðausturs.
Eldhús, opið við stofu að hluta, parketlagt og bjart með fallegum hvítum innréttingum með innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum ísskáp og stórri SMEG samstæðu með gashelluborði.
Geymslukjallari er undir hluta hússins, en hann er ekki manngengur.
Húsið að utan lítur vel út og er nýlega málað. Gler og gluggar líta nokkuð vel út.
Lóðin er fullfrágengin og glæsileg, afgirt með viðargirðingu og lágum vegg úr hoggnu grjóti. Tyrfðar flatir og hellulagðir stígar og verönd auk trjágróðurs.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum og rólegum stað í miðborginni.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is