Þriðjudagur 7. apríl
Fasteignaleitin
Opið hús:12. apríl kl 14:00-14:30
Skráð 7. apríl 2026

Arnarsmári 40

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
108.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
88.500.000 kr.
Fermetraverð
818.686 kr./m2
Fasteignamat
83.650.000 kr.
Brunabótamat
67.450.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2505972
Landnúmer
227205
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
10
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðvestursvalir
Lóð
2,05
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Domusnova og Ingunn Björg löggiltur fasteignasali kynna afar glæsilega og vandaða 3ja herbergja endaíbúð með rúmgóðum svölum til suðvesturs í nýlegu lyftuhúsi á Nónhæð í Kópavogi, við Arnarsmára 40.
Rúmgóð íbúð á fyrstu hæð (2 hæð frá götu) einstaklega björt eign með stórum gluggum á þrjá vegu. Stofa, borðstofa og eldhús eru samliggjandi í opnu rými með útgengi á suðvestursvalir. Í eldhúsi er vönduð og falleg innrétting með miklu skápaplássi og stórri eyju. Stórt og bjart hjónaherbergi með fataherbergi, barnaherbergi með skápum sem ná til lofts. Baðherberbergi er með fínni innréttingu með skúffum og skáp á vegg, rúmgóðum lokuðum sturtuklefa og handklæðaofni, þvottarými er inn af baðherbergi. Forstofa með góðum fataskáp. Sérgeymsla í kjallara. Snjóbræðsla er undir stétt fyrir framan hús og næg bílastæði.
Allar innréttingar og skápar eru sérsmíði frá HTH / Ormsson, gólfefni er harðparket á alrými og herbergjum, flísar á baðherbergi og þvottarými, vinyl flísar á forstofu. 

Um er að ræða frábæra staðsetningu í hjarta Kópavogs. Örstutt ganga er í alla helstu þjónustu, s.s leikskóla, skóla, íþróttastarf, Smáralind, Smáratorg, matvöruverslanir heilsugæslu og aðra þjónustu. Mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í allar áttir og út á helstu stofnbrautir. 

Nánari upplýsingar veitir:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is

Lýsing eignar:
Forstofa:
Rúmgóð með stórum fataskáp.
Stofa / borðstofa: Bjart, opið rými með gluggum á þrjá vegu, þar af er einn gluggi með extra breiðri gluggakistu sem hægt er að nýta sem setbekk. Útgengt á suðvestur svalir. 
Eldhús: Í opnu rými með stofu og borðstofu. Falleg innrétting með miklu skápaplássi og stórri eyju. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Helluborð í eyju með háfi yfir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með tveimur gluggum. Fínt fataherbegi er inn af herberginu. 
Barnaherbergi: Fataskápur sem nær til lofts. 
Baðherbergi: Rúmgóð innrétting með skúffum, skápur á vegg, spegill með ljósi. Ljós borðplata með niðurfelldum vaski. Rúmgóður sturtuklefi, handklæðaofn, upphengt salerni. Flísalagt gólf og veggir að hluta. 
Þvottaherbergi: Inn af baðherbergi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skúffur undir vélum og skápar fyrir ofan vélar. Flísar á gólfi. 
Geymsla: 9,7 fm geymsla er staðsett í kjallara hússins. 
Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Stigagangur er mjög snyrtilegur og bjartur með flísum og teppi á gólfum. Myndavéladyrasími er í húsinu. Lyklalaust aðgengi í sameign við inngang. 

Byggingaraðili hússins er KS Verktakar. Áhersla var lögð á vandaðan og snyrtilegan frágang. Veggir milli íbúða eru um 25 cm þykkir til að ná fram aukinni hljóðeinangrun , veggir innan íbúðar þ.e. á milli herbergja eru einangraðir með tvöföldum gipsplötum, hljóðeinangrandi dúkur er undir flísum á baðherbergi. 



Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/12/202023.200.000 kr.61.700.000 kr.108.1 m2570.767 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Austurströnd 8
Austurströnd 8-13.jpg
Skoða eignina Austurströnd 8
Austurströnd 8
170 Seltjarnarnes
67.1 m2
Fjölbýlishús
211
996 þ.kr./m2
66.800.000 kr.
Skoða eignina Ljósheimar 6
Skoða eignina Ljósheimar 6
Ljósheimar 6
104 Reykjavík
53.3 m2
Fjölbýlishús
211
1199 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Lerkihlíð 5
Skoða eignina Lerkihlíð 5
Lerkihlíð 5
105 Reykjavík
97.6 m2
Hæð
312
849 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Andarhvarf 7
Bílskúr
Skoða eignina Andarhvarf 7
Andarhvarf 7
203 Kópavogur
183.9 m2
Fjölbýlishús
614
734 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin