Miðvikudagur 12. mars
Fasteignaleitin
Opið hús:16. mars kl 17:00-17:30
Skráð 11. mars 2025
Deila eign
Deila

Bólstaðarhlíð 42

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
96 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
71.500.000 kr.
Fermetraverð
744.792 kr./m2
Fasteignamat
62.650.000 kr.
Brunabótamat
45.150.000 kr.
Mynd af Berglind Hólm Birgisdóttir
Berglind Hólm Birgisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1965
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2013700
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Gluggar / Gler
endurnýjað að hluta
Þak
nýlega endurnýjað
Svalir
vestur svalir
Upphitun
ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Eitt opnanlegt fag í stofu er stíft og opnast ekki í dag. 
Gat í rennihurð á milli stofa. 
Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Falleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð (2 svefnherbergi + 2 stofur) í góðu fjölbýlishúsi sem hefur fengið gott viðhald miðsvæðis í Reykjavík. Íbúðin er á 1.hæð hússins, aðeins gengið upp ½ hæð frá anddyri hússins. Búið er að endurnýja eldhús og baðherbergi, bæði innréttingar og tæki á fallegan og vandaðan hátt. Árið 2017 var skipt um glugga í íbúðinni í framhlið, árið 2020 var þakpappi og þakjárn endurnýjað á húsinu og 2023 var dren, hellulögn og hitalögn endurnýjað við framhlið hússins (austur hlið hússins).
Stutt er í skóla , leikskóla og alla helstu þjónustu og verslanir frá eigninni.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
 
Nánari lýsingar eignar:

Gengið er inn í anddyri á jarðhæð og er þaðan aðeins ½ hæð upp að íbúðinni.
Forstofa: Komið er inn í forstofuhol með dökkum flísum á gólfi.
Eldhús: Eldhús er fallega innréttað með miklu og góðu skápaplássi. Innrétting er í U með hvítum skápum og dökkri borðplötu. Á einn vegg ná skápar frá gólfi og upp í loft með góðum tækjaskáp, bakaraofni í vinnuhæð og búrskáp, í miðju eru neðri skápar undir vaski við góðan glugga, á þriðja vegginn eru efri og neðri sápar með lýsingu undir efri skápum, góðu vinnuborði og innbyggðum ísskáp. Dökkar flísar eru á gólfi.
Stofa + borðstofa: Stofu rými íbúðarinnar er sérlega rúmgott og eru borðstofan og setustofan saman í tvískiptu rými að hluta með harðparketi á gólfi. Á milli stofanna er stór rennihurð svo hægt sé að stúka á milli ef þörf er á. Frá setustofunni er útgengt á vestur svalir sem snúa út á óbyggt tún og því góð yfirsýn og næði á svölunum. Auðvelt er að bæta við þriðja svefnherberginu með því að stúka af hluta af stofunni.
Baðherbergi: Baðherbergið er glæsilega innréttað með Terraso flísum á gólfi og á tveimur af fjórum veggjum rýmisins. Hvít innrétting er undir vaski og stein borðplata. Speglaskápur er á vegg fyrir ofan vask. Handklæðaofn er á vegg. Djúpur sturtubotn er í rýminu sem nýtist einnig sem baðkar fyrir yngri kynslóðina. Góður opnanlegur gluggi.
2 x svefnherbergi: Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og eru þau bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi. Fallegur fataskápur er veggja á milli og upp í loft með rennihurðum í hjónaherberginu og í barnaherberginu er þrefaldur innfeldur fataskápur.
Geymsla: Rúmgóð geymsla er í sameign sem fylgir íbúðinni, 9,4 m2.
Sameign: Þvotta-og þurrkherbergi og hjólageymsla.
Í sameign eru aðskilin þvottaherbergi og þurrkherbergi sem nýtast fyrir íbúðir stigagangsins (aðeins er 1 hæð niður í sameignina frá íbúðinni). Einnig er góð hjóla- og vagnageymsla.
 
Framkvæmdir samkvæmt upplýsingum frá húsfélagi:
2023 Dren endurnýjað fyrir framan hús og nýjar hellur og hitalögn lögð í stétt. Skolplagnir endurnýjaðar í kjallara frá húsi út í brunn. 
2020 Þakpappi og þakjárn endurnýjað
2017 Steypuviðgerðir að utan og hús málað.
2017 Skipt um glugga í austur hlið íbúðarinnar.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Meðalholt 10
Opið hús:16. mars kl 14:00-14:30
Skoða eignina Meðalholt 10
Meðalholt 10
105 Reykjavík
80.6 m2
Fjölbýlishús
212
904 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Snorrabraut 35
Skoða eignina Snorrabraut 35
Snorrabraut 35
105 Reykjavík
98.6 m2
Fjölbýlishús
311
710 þ.kr./m2
69.990.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 133
Skoða eignina Laugavegur 133
Laugavegur 133
105 Reykjavík
80 m2
Fjölbýlishús
312
896 þ.kr./m2
71.700.000 kr.
Skoða eignina Stúfholt 3
Skoða eignina Stúfholt 3
Stúfholt 3
105 Reykjavík
79 m2
Fjölbýlishús
312
885 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin