Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali og LIND Fasteignasala, kynna til sölu:
Bjarta & fallega tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með svölum með svalalokun í lyftuhúsi við Lágaleiti 1, 103 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða adda@fastlind.is
Skráð stærð eignar skv. FMR er 57,7 fm og skiptist í íbúð 45,9 fm og geymslu 11,8 fm.
Eignin skiptist í:Forstofu, svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og geymslu.
Nánari lýsing eignar:Forstofa: með harðparketi á gólfi.
Eldhús: með hvítri innréttingu með spanhelluborði, bakaraofni, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Stofa: er í opnu rými með eldhúsi. Stofan er björt með harðparketi á gólfi og góðu skápaplássi.
-Útgengt er úr stofu út á rúmgóðar
svalir með svalalokun.
Svefnherbergi: er staðsett inn af stofu, með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt gólf og veggir að hluta. Hvít innrétting með vaski og spegli fyrir ofan. Flísalögð "walk-in" sturta, handklæðaofn og upphengt salerni.
-Í innréttingu á baðherbergi er stæði fyrir
þvottavél og þurrkara.
Geymsla: er 11,8 fm, staðsett í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla er staðsett í sameign og einnig er
hjólaskýli á lóðinni.
Á lóðinni er
leikvöllur.
Lágaleiti 1 er vel staðsett eign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
-T.d. er verslunarmiðstöðin Kringlan í göngufæri og veitingastaðurinn Yndisauki er staðsettur í kjarnanum. Allar nánari upplýsingar veitir:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða adda@fastlind.isKostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 3.800 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.