Garðatorg eignamiðlun kynnir til sölu einstaklega bjarta og fallega 75,6 fm tveggja herbergja íbúð með rúmgóðum svölum á 2. hæð í snyrtilegu lyftuhúsi, fyrir 50 ára og eldri, við 17. Júnítorg 3 í Sjálandshverfinu í Garðabæ.
Hér er um að ræða vel skipulagða og rúmgóða eign í vönduðu fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2006. Íbúðin er falleg og rúmgóð með stóru svefnherbergi, stofu, borðstofu og eldhúsi í björtu alrými með útgengi á svalir. Húsið er vandað með snyrtilegri sameign, lyftu, fallegum garði og sameiginlegum bílastæðum fyrir framan húsið. Þetta er skemmtileg eign á þessum vinsæla stað í hjarta Sjálandshverfisins þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu. Jónshús er handan götunnar en þar hefur Félag eldri borgara í Garðabæ haldið úti öflugu félagsstarfi um árabil. Íþróttamiðstöðin og sundlaugin í Ásgarði eru í göngufæri og stutt er í matvöruverslanir, veitingastaði, heilsugæslu og apótek í Litlatúni og á Garðatorgi.
Nánari lýsing: Forstofa: Parket á gólfi og rúmgóður fataskápur. Stofa og borðstofa: Bjart alrými með fallegum gluggum og parketi á gólfi. Gengið er út á svalir út stofu. Eldhús: Falleg eikarinnrétting með góðu skápaplássi, helluborði, bakarofni og háfi. Opið er úr eldhúsi inni í stofu og borðstofu. Svefnherbergi: Rúmgott með stórum fataskápum og parketi á gólfi. Baðherbergi: Falleg innrétting með góðu skápaplássi, sturtuklefa og handklæðaofni. Flísar á gólfi og veggjum. Inni á baðherbergi er gert ráð fyrir þvottaaðstöðu. Í kjallara er sérgeymsla og sameiginleg hjólageymsla.
Í nágrenninu eru fallegar gönguleiðir um Sjálandið, meðfram strandlengjunni og nærliggjandi svæði.
*Eignin er laus og möguleiki á að fá hana afhenta við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir: Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteinga- og skipasali, s:8660507 eða unnur@gardatorg.is

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
29/07/2008
20.240.000 kr.
23.946.000 kr.
75.6 m2
316.746 kr.
Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.