Hraunhamar fasteignasala kynnir: virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða, rúmgóða 2. herbergja 88,2 fm endaíbúð á 1hæð (jarðhæð) í góðu lyftuhúsi fyrir 55 ára og eldri, stutt í þjónustu hjá DAS. Frábær staðsetning og rógleg staðsetning.
Stutt í skóla, verslun og í göngufæri við náttúruna.
Borðstofa við eldhús með gólfsíðum gluggum og þvottaherbergi er innan íbúðar. Vönduð eldhúsinnrétting með granítplötum.
Sérafnotaréttur (einkaafnotaréttur) á jarðhæð (verönd) með möguleika á stækkun, afgirða og gera skjólveggi einsog á öðrum íbúðum á jarðhæðinni. Gott aðgengi er að íbúðinni.Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 88,2 m2 þar af er geymsla íbúðar 8,5 m2. Allar hurðar í eigninni er 90 cm. Eignin er laus til afhendingar samhliða kaupsamningi eignar Nánari lýsing:
Forstofan er rúmgóð með innbyggðum fataskáp og flísalögðu gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð með stórum gluggum á tvo vegu með parketi á gólfi. Granít í gluggakistum.
Eldhúsið er opið við stofu, falleg innrétting með flísum á milli skápa, granítborðplötum og flísalögðu gólfi, uppþvottavél og ísskápur, AEG ofn og AEG keramik helluborð með viftu yfir.
Borðstofa með stórum rennigluggum , útgengi út á suður verönd.
Hjónaherbergið er rúmgott með innbyggðum fataskáp og parkeit á gólfi.
Baðherbergið er rúmgott með walk-in sturtu, góð innrétting með granít borðplötu, handklæðaofn , upphengt salerni og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottaherbergi er innan íbúðar með innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara, flísalagt gólfi og skolvaskur.
Sér geymsla er í kjallara hússins með hillum og máluðu gólfi. (8,5fm)
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Tvær bílahleðslustöðvar á lóð.
Þetta er mjög áhugaverð eign á þessum vinsæla stað fyrir 55 ára og eldri borgara.
Allar upplýsingar um eignina veitaNánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.