Stórkostlegt tækifæri til að búa í sveitinni.
Árni B.Erlingsson Lfs. og Fasteignaland ehf. kynna eignina Stóraborg 13, 311 Borgarbyggð, nánar tiltekið eign með fastanúmer 233-5405 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindum.
Eignin Stóraborg 13. er samkvæmt HMS birt stærð 83.8 fm.Lýsing eignar:Um er að ræða fallegt rúmt sumarhús sem er um 97 fm og geymsluhús/gestahús sem er óskráð og er 15 fm. Möguleiki er að byggja gestahús að stæðr 22,3 fm, búið er að gera klárt í undirstöður og fylgja með teikningar og byggingarleyfi.
Byggðir fermetrar í dag eru því samtals 112,5 fm með möguleika á 22,3 fm stækkun.
Gengið er inní rúmgóða forstofu með góðu skápaplássi, og þar mætir þér eitt stórt 15 fermetra svefnherbergi með góðu skápaplássi, baðherbergi flísalagtm með snyrtilegri innréttingu salerni og sturtu, þar er líka tengi fyrir þvottavél. Eldhús er með smekklegri innréttingu, með stórri gaseldavél með bakarofni, stór ískápur og uppþvottavél. Eldhús og borðstofa flæðir saman í eina heild og er með parket á gólfi og það er gengið inní viðbót sem var gerð við upphaflegu teikningu og er um 31.5 fm og er stofa í dag, væri möguleiki að breyta og koma fyrir herbergi eða herbergjum þar.
Þetta er björt og falleg eign með miklu útsýni, miklir möguleikar, t.d. breyta skipulagi fjölga herbergjum og byggja gesthús.Aðalhúsið er með rafmagnskyndingu, gólfhitakerfi til kyndingar og fyrir heitt neysluvatn.
Lóðin er eignarlóð 5.322 fm, með grasflöt og góðu bílastæði.
Stutt er í verslun, Borgarnes ekki langt frá (innan við 20 mín), þar sem hægt er að fara í sund, golf og fleira. Einnig eru náttúruperlur skammt frá á borð við Glanna í Norðurá og Grábrók.
Nánari upplýsingar veita:Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.