Mánudagur 22. júní
Fasteignaleitin
Skráð 22. júní 2026

Dagverðarnes 113

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
62.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
46.000.000 kr.
Fermetraverð
734.824 kr./m2
Fasteignamat
43.750.000 kr.
Brunabótamat
43.800.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2219582
Landnúmer
174099
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunlegir, sumir frá 1994 og aðrir frá 2014
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei.
Upphitun
Rafmagnskynding
Inngangur
Sérinngangur
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:

Gott og vel staðsett 62,6 fm. sumarhús með tveimur gestahúsum að Dagverðarnesi 113, 311 Borgarnesi ( Skorradalur ) 

Smelltu á linkinn til að skoða sumarhúsið í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Sumarbústaðurinn er byggður árið 1994, byggt var svo við bústaðinn árið 2014 þ.e. nýtt baðherbergi, forstofa og stórt svefnherbergi. Aðalrýmið í eldri hlutanum stækkaði þar af leiðandi, þar er eldhús, stofa og svefnherbergi og svefnloft. Góð verönd umlykur allt húsið. Þegar bústaðurinn var stækkaður árið 2014 var settur nýr panill á allt húsið fyrir utan lítið svæði bak við hús. Nýtt gólfefni er á öllu húsinu. Rúmgóðir skápar eru í svefnherbergi og forstofu. Það er pláss fyrir þvottavél inn á baðherbergi.  Það eru stæði fyrir fjóra bíla. 

Gestahúsin eru tvö og eru 12 fm og 6 fm svo í heildar eignin er ca. 80,5 fm. 

Rarik útvegar rafmagnið. Það er mjög mismunandi hversu háir reikningar eru, fer eftir hversu mikið eða lítið það er kynt, húsið er með rafmagnsofna. Það er því hægt að stýra því auðveldlega, hægt er að lækka upphitun þegar engin er í húsinu og þess háttar. Það er ekki heitt vatn á svæðinu en það er vatnskútur á loftinu sem hitar vatnið. Áður var gashitari sem hitaði jafnóðum og vatnið var notað. Vatnshitarinn er nýlegur, var keyptur fyrir aðeins örfáum árum.

Um er að ræða leigulóð, ársleiga fyrir afnot landsins skal vera 188.000 ( grunngjald ) og skal leigugjaldið greitt fyrirfram í fyrsta sinn 15. apríl 2020. Grunnleigugjaldið miðar við byggingarvísitölu sem er 146,3 stig í nóvembermánuði 2019. 

Eigendur hafa alla tíð sinnt góðu viðhaldi á húsunum. Eigendur hafa einnig gróðursett og sinnt garðvinnu vel, það eru góðar flatir innan um há og falleg tré og runna.

Frábærar gönguleiðir eru á svæðum í Dagvarðarnesi og auðvelt er að ganga á milli svæða. Skorradalsvatn og svæðið í heild sinni er ótrúlega fallegt, það má segja að þetta svæði sé paradís. 

Einnig er öryggishlið sem stýrir aðgengi fólks á bílum inn á svæðið. 

Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6056, gulli@remax.is 

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stefnisvogur 46
Skoða eignina Stefnisvogur 46
Stefnisvogur 46
104 Reykjavík
50.2 m2
Fjölbýlishús
211
1054 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Hulduhóll 23
3D Sýn
Skoða eignina Hulduhóll 23
Hulduhóll 23
820 Eyrarbakki
80 m2
Raðhús
212
638 þ.kr./m2
51.000.000 kr.
Skoða eignina Hofsvík 2
3D Sýn
Skoða eignina Hofsvík 2
Hofsvík 2
805 Selfoss
73.8 m2
Sumarhús
322
541 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Hrísalundur 18
Skoða eignina Hrísalundur 18
Hrísalundur 18
600 Akureyri
49 m2
Fjölbýlishús
211
847 þ.kr./m2
41.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin