Föstudagur 15. maí
Fasteignaleitin
Skráð 15. maí 2026

Klettastígur 14 - 101

Tví/Þrí/FjórbýliNorðurland/Akureyri-600
72.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
685.440 kr./m2
Fasteignamat
45.100.000 kr.
Brunabótamat
35.450.000 kr.
Mynd af Ólafur Már Þórisson
Ólafur Már Þórisson
Löggildur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2148355
Landnúmer
148544
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Óvitað
Raflagnir
Endurnýjað, sér tafla
Frárennslislagnir
Óvitað
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Á að fara í þak, kostnaður áætlaður um 2 mkr á íbúðina
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Á ekki við
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Klettastígur 14 - 101

Mjög skemmtileg og vel skipulögð þriggja herbergja neðri sérhæð í tvíbýlishúsi innst í botnlanga í Klettastíg með sér inngangi. Virkilega rólegt umhverfi og mikið næði. Eignin sem hefur verið mikið endurnýjuð er 72,8 fm..


Eignin skiptist í anddyri, geymslurými undir stiga, eldhús, þvottahús, kalda geymslu undir stiga, stofu og tvö svefnherbergi, annað skráð sem geymsla og baðherbergi. 

Anddyri er með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhús er með parket á gólfi, borðkrók, nýlegri hvítri innréttingu með stæði fyrir innbyggðan ísskáp og uppþvottavél sem fylgja og ágætu bekkjarplássi. 
Þvottahús er inn af eldhúsi, þar eru flísar á gólfi og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Köld geymsla er inn af þvottahúsi undir stiga. 
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskápum. Rennihurð er inn í stærra herbergið við hlið stofu. 
Baðherbergi er með flísar á gólfi og í kringum votrými. Á baðinu er handklæðaofn og vélrænt útsog.
Stofa er björt með parket á gólfi. 
Geymsla undir stiga við forstofu, þar er lagnakista fyrir gólfhita og rafmagnstafla. 

Annað:
-Gólfhiti er í íbúð
-Nýleg innrétting bæði í eldhúsi og á baðherbergi
-Nýlegt parket
-Húsið var nýlega málað að utan
-Eitt bílastæði fylgir eigninni
-Sér rafmagnstafla fyrir eignina staðsett í geymslu undir stiga
**Getur verið laus fljótlega**

Hlutfallstala eignarinnar í lóð og mannvirkjum er rétt um 25% eins og í hitakostnaði sem er á einum mæli en neðri hæð greiðir áðurnefnt hlutfall af honum.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu er lóð í óskiptri sameign en þó er á lóðaruppdrætti einnig afmarkaður flötur í norðvesturhorni lóðar til sérafnota íbúðar á 1. hæð, s.s. byggingu sólpalls, sem þó hindarar ekki gangandi umferð fyrir húshorn. Einnig er afmarkaður flötur efri hæðar í suðausturhorni lóðar fyrir m.a. heitan pott.   
Vart var við leka og eru greinileg ummerki um það í kaldri geymslu undir stiga og steyptum stigapalli efri hæðar. Samkvæmt eiganda hefur eigandi efri hæðar þegar brugðist við og lagað þann hluta utan frá og ekki hefur orðið vart við frekari rakaummerki síðan. Stiginn er þó gamall og mögulega í framtíðinni frekari aðgerða þörf. 
Áætlað er að fara í þakið á næstunni, jafnvel í sumar og er kostnaður eignarinnar áætlaður núna ca. 2 mkr. en heildaráætlun hljóðar upp á 7,5 mkr., sem er óformlegt tilboð frá verktaka.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/04/202023.450.000 kr.24.150.000 kr.72.8 m2331.730 kr.
22/09/201413.500.000 kr.14.000.000 kr.72.8 m2192.307 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vestursíða 10 íbúð 201
Opið hús:18. maí kl 16:00-16:30
Vestursíða 10 íbúð 201
603 Akureyri
80 m2
Fjölbýlishús
312
599 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Smárahlíð 7d
Opið hús:19. maí kl 16:15-17:00
Skoða eignina Smárahlíð 7d
Smárahlíð 7d
603 Akureyri
80.2 m2
Fjölbýlishús
312
605 þ.kr./m2
48.500.000 kr.
Skoða eignina Klettamói 9
Skoða eignina Klettamói 9
Klettamói 9
815 Þorlákshöfn
70.5 m2
Fjölbýlishús
312
745 þ.kr./m2
52.500.000 kr.
Skoða eignina Klettamói 9
Skoða eignina Klettamói 9
Klettamói 9
815 Þorlákshöfn
81.9 m2
Fjölbýlishús
312
707 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin