Víðilundur 10-106 Mjög góð 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð, svalir til vesturs Um er að ræða mjög snyrtilega og bjarta fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og er öll nýmáluð. Gengið er upp sex tröppur að palli og þaðan beint inn í íbúðina. Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með brúnum flísum á gólfi, fatahengi og hillu. Hol: Hol er með parketi á gólfi og tengir saman rými íbúðarinnar. Stofa: Er björt og skemmtileg, með parketi á gólfi og góðu rými fyrir setustofu og borðstofu. Svefnherbergi: Svefnherbergi eru þrjú, öll með parketi á gólfi. Eldhús: Eldhúsið var endurnýjað fyrir nokkrum árum og er með nýlegri hvítri innréttingu, gráum borðplötum, keramikhelluborði og innfelldum stálvaski. Ljósar plötur eru á milli efri og neðri skápa. Úr eldhúsinu er gengið inn í þvottahús sem er mjög snyrtilegt með dökkum flísum á gólfi, hvít innrétting með skúffum undir og hillu fyrir föt, auk aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Húsið og lóð: Húsið að utan hefur nýlega verið málað. Einnig hefur bílaplan verið tekið í gegn, þar sem grafið var frá húsinu, drenlagnir lagfærðar og nýtt malbik lagt. Um er að ræða bjarta, vel skipulagða og mjög snyrtilega eign sem hefur verið vel við haldið og mikið endurnýjuð.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
17/04/2007
11.505.000 kr.
15.500.000 kr.
95.4 m2
162.473 kr.
Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.