Miðvikudagur 4. júní
Fasteignaleitin
Skráð 3. júní 2025
Deila eign
Deila

Hlíðarbyggð 33

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
252.1 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
184.900.000 kr.
Fermetraverð
733.439 kr./m2
Fasteignamat
137.050.000 kr.
Brunabótamat
115.200.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Steinþórsson
Aðalsteinn Steinþórsson
Viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali
Byggt 1979
Þvottahús
Sérinng.
Fasteignanúmer
2070458
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Skipt verður um glugga og gler í sjónvarpsstofu fyrir afhendingu.
Gallar
Ekki eru samþykktir uppdrættir til hjá byggingafulltrúa af breytingum á skipulagi innandyra.  Skipulag á grunnmyndum í sölulýsingu á netinu er ekki nákvæmlega rétt.
Kvöð / kvaðir
Lóðarleigusamningur, sjá þinglýst skjal nr.  436-S-11543.
Mjög mikið endurnýjað, glæsilegt og vel skipulagt 252,1 fm raðhús á tveimur hæðum með aukinni lofthæð í stofu og eldhúsi og innbyggðum bílskúr miðsvæðis í Garðabæ. Fimm svefnherbergi eru í eigninni og hún hentar afar vel fyrir vaxandi fjölskyldu. Á neðri hæð hússins er 3-4 herbergja íbúð sem er leigð út í dag og skilar góðum leigutekjum en því er hægt að breyta og hún getur verið hluti af stóru fjölskylduhúsi. Skjólgóð verönd með köldum og heitum potti er framan við hús sem nýtur sólar frá morgni til kvölds.  Fjögur einka bílastæði. Frábær staðsetning þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöðina Ásgarð, Fjölbrautaskóla Garðabæjar og Mýrina ásamt verslun og þjónustu við Garðatorg.  Áætlað fasteignamat ársins 2026 er 159,3 mkr.

Á aðalhæð er stofa og borðstofa, eldhús, þvottaherbergi/geymsla, vinnrými, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og andyri.  Á neðri hæð er stofa, eldhús, baðherbergi, 3-4 svefnherbergi, geymsla og andyri.  

Nánari lýsing

Aðalhæð: Komið er inn í flísalagða forstofu með hillum og fatahengi en mögulegt er að stækka hana. Gengið inn í sjónvarpshol þaðan sem dyr eru út á verönd. Á herbergjagangi eru hjónaherbergi, tvö barnaherbergi og baðherbergi. Baðherbergið var allt endurnýjað árið 2021 og er með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta, vegghengdu salerni, góðri baðinnréttingu, "walk-inn" sturtu með hertu glerskilrúmi og handklæðaofni. Frá sjónvarpsholi er gengið upp þrjú þrep í eldhús. Eldhúsið er opið og rúmgott með fallegri eldhúsinnréttingu. Mjög gott skápa- og borðpláss, ofn er í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél.  Við eldhús var hringstigi á neðri hæð, þar sem nú er vinnurými. Stiginn er til og fylgir með og hægt að koma honum fyrir að nýju. Úr eldhúsi er gengið inn í þvottaherbergi og þar er einnig rúmgóð geymsla. Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með glugga á tvo vegu, hljóðdempandi loftdúkur, innfelld lýsing og óbein lýsing yfir gluggatjöldum.  Aukin lofthæð er í eldhúsi og stofu/borðstofu með hallandi lofti sem setur fallegan svip á rýmin.

Neðri hæð: Hún skiptist í íbúð og bílskúr og er 125,1 fm en ekki full lofthæð á hæðinni.. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, 3-4 svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og andyri. Innangengt er í íbúðina í gegnum bílskúrinn og útgengt út í garð. Bílskúrshurð og gönguhurð við hliðina.  Bílskúrinn er skráður 30,2 fm og er í dag nýttur sem geymsla og stór skápur skilur að geymslurými og inngang í íbúðina á neðri hæð.  Bílskúrshurðin var færð framar og skúrinn þannig stækkaður um u.þ.b. 5 fm sem eru ekki inn í fermetratölu hússins. Hitalögn er í plani fyrir framan bílskúr og fyrir framan inngang á efri hæð. Möguleiki á mjög góðum leigutekjum.

Útisvæði: Árið 2023 var gert veglegt útisvæði fyrir framan hús. Þar er trépallur og skjólgott og sólríkt svæði sem vísar til suðvesturs með köldum potti, hitaveitupotti með appi og bekkjum. Út frá sjónvarpsholi eru timbursvalir og steyptar tröppur niður í garð. Fjögur einka bílastæði framan við hús og yfirleitt næg bílastæði í götunni. Trépallur út af sólstofu og gróinn garður bak við húsið.

Framkvæmdir og viðhald á undanförnum árum:
2025 - Hljóðdempandi loftdúkur settur í stofu, eldhús og bað með innfelldri lýsingu. Sett ný hurð út í garð á neðri hæð.
2023 - Smíðaður pallur fyrir fram hús og sett kalt bað og heitur pottur með appstýringu.
2023 - Settir nýjir Velfag gluggar  í u.þ.b. helming af gluggum í húsinu. Velfag 3 laga gluggar og sólarvarnargler eru í stofunni. 
2022 - Skipt um þakjárn og pappa.
2021-  Settir nýjir fataskápar í öll herbergi á efri hæð.
2021 - Baðherbergi á efri hæð endurnýjað og lagðar nýjar neysluvatnslagnir í baðherberginu.
2021 - Sett nýtt gólfefni á alla efri hæðina og nýjar innihurðir.
2021 - Rafmagn á efri hæð endurnýjað að hluta, dregið nýtt í stofu og eldhús. 
2021 - Settur hiti í gólf á allri efti hæð fyrir utan svefnherbergin, þar eru ofnar. 
2017 - Húsið var múrviðgert og málað að utan.

Eignin Hlíðarbyggð 33 er skráð sem hér segir hjá HMS: Fastanúmer 207-0458, birt stærð 252.1 fm.  Áætlað fasteignamat ársins 2026 er 159,3 mkr.

Hafið samband og bókið skoðun.  Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Steinþórsson Viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali, í síma 896 5865, tölvupóstur alli@valborgfs.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/01/202182.300.000 kr.95.500.000 kr.252.1 m2378.817 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Engimýri 3
Skoða eignina Engimýri 3
Engimýri 3
210 Garðabær
288 m2
Einbýlishús
726
625 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Lynghólar 8
Bílskúr
Skoða eignina Lynghólar 8
Lynghólar 8
210 Garðabær
236.2 m2
Raðhús
614
802 þ.kr./m2
189.500.000 kr.
Skoða eignina Mosagata 14
Bílskúr
Skoða eignina Mosagata 14
Mosagata 14
210 Garðabær
224 m2
Parhús
534
888 þ.kr./m2
199.000.000 kr.
Skoða eignina Langamýri 9
Bílskúr
Skoða eignina Langamýri 9
Langamýri 9
210 Garðabær
223.8 m2
Einbýlishús
724
782 þ.kr./m2
175.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin