Föstudagur 6. febrúar
Skráð 5. feb. 2026

Vesturberg 122

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
104.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
623.439 kr./m2
Fasteignamat
62.550.000 kr.
Brunabótamat
49.400.000 kr.
Mynd af Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Byggt 1972
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2050489
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Í lagi
Raflagnir
Í lagi
Frárennslislagnir
Í lagi
Gluggar / Gler
Í lagi
Þak
Í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
101 Reykjavík fasteignasala kynnir í einkasölu. Einkar heillandi snyrtilega og vel staðsetta fjölskylduvæna íbúð á þriðju hæð með tvennum rúmgóðum svölum með fallegu útsýni til vesturs og hins vegar með útsýni til austurs og að nærumhverfi.
Skólar, leikskólar, sundalaug, íþróttir og verslun í göngufæri.
Eldhús endurnýjað 2023-2025.


Lýsing eignar: 
Forstofuhol - Rúmgott hol með forstofuskáp. Parket er á gólfi, sama og í stofu og herbergjum.
Stofa/Borðstofa - Rúmgóð parketlögð stofa. Útgengt út á vestursvalir þar sem hægt er að njóta sólar frá síðdegi til sólseturs. Kubbaljósin í lofti og borðstofuvegg fylgja með.
Eldhús - Nýlega uppgert 2023-2025 í rustic bistro stíl með plássi fyrir lítinn eldhúskrók. Innbyggð uppþvottavél frá Samsung. Spanhelluborð og fjölhæfur blástursofn frá Siemens. Lítill vínkælir (17fl) er innbyggður í eldhúsinnréttinguna af gerðinni Temptech Oslo með tveimur aðskildum hitastýrðum svæðum. Ísskápur frá Siemens, 201x70cm breiður (tekur ofnplötu í heilu lagi) getur fylgt með í kaupum. Öll framangreind raftæki fyrir utan uppþvottavél keypt í Rafha í árslok 2023. Stór eldhúsvaskur (50x40 cm) og blöndunartæki með útdraganlegum rana, hvort tveggja af gerðinni Tapwell, keypt í Orgus í árslok 2023. Gólf var flotað og lagður dúkur frá Álfaborg, skipt um rofa og innstungur (Bitcino Living Now).

Þvottahús - Sér þvottahús er innan íbúðar. Í eldhúsi er rennihurð í hlöðustíl þar sem gengið er inn í þvottahús þar sem pláss er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Einnig er þar skápur, geymsluhillur og opnanlegur gluggi.
Baðherbergi - Uppgert 2015, flísalagt, upphengt salerni og sturta með sturtugleri. Baðinnrétting hvít með handlaug og skúffum og baðskápur fyrir ofan. 2025 sturtuhausar og festingar endurnýjaðar.

Þrjú parketlögð svefnherbergi eru í íbúð eitt innangengt frá forstofuholi með útsýni til vesturs og tvö á gangi hlið við hlið með útsýni til austurs. 
Hjónaherbergi - Rúmgott parketlagt nýlega málað og skipt um tengla og slökkvara. Fataherbergi inn af hjónaherbergi endurnýjað, málað, nýr skápur og gólfefni 2023.  Útgengt frá herbergi á austursvalir sem ná morgun- og hádegissól. 
Svefnherbergi minna parketlagt, útsýni til austurs. 2020 herbergi málað og skipt um tengla og rofi endurnýjaður. 
Svefnherbergi stærra við forstofuhol bjart parketlagt og með útsýni til vesturs. 

Geymsla - Sér geymsla íbúðar er á sameignarsvæði jarðhæðar, 5,9 fm. Rúmgóðar hillur eru í steinsteyptum hluta geymslu og fylgja þær með geymslunni.
Sameign - Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla auk þurrkherbergis. Árið 2015 var gólfteppi og málning í stigagangi endurnýjuð og er hann bjartur og snyrtilegur.
Sameiginleg bílastæði á lóð við hús.
 
2010 Skipt var um glugga í öllu húsinu að undanskildum þeim gluggum sem liggja að svölum íbúða.
2020 - 2021 Framhlið háþrýstiþvegin og allur múr yfirfarinn og viðgerður og öll framhlið máluð, þ.m.t. svalir og svalahandrið. Bakhlið háþrýsti þvegin og múr yfirfarinn og viðgerður á öllum svölum. Múr og handrið málað á bakhlið.
2020 Þak yfirfarið og málað.
2022 Ofnar endurnýjaðir í íbúð nema á baði.
2023-2025 Elhús endurnýjað.
2023 Nýtt dyrasímakerfi með myndavél.
2026 Skipt um alla ofna í sameign.

Um er að ræða einstaka eign sem er vel staðsett með tilliti til allrar helstu þjónustu og afþreyingar og samkvæmt upplýsingum seljenda er stigagangur einkar samheldin og haldið vel um sameign og hús.   
Mjög stutt göngufjarlægð í tvo grunnskóla, leikskóla, Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Breiðholtslaug, líkamsrækt, verslanir, heilsugæslu, bókasafn og alla helstu þjónustu. Göngufjarlægð í útivistarperlur Elliðaárdalsins.
Í hverfinu er öflugt og fjölbreytilegt frístundastarf fyrir börn og auðvelt fyrir börn að komast á milli staða.
Góð fjölskylduvæn eign vel staðsett í hverfinu.


Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is 
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501. 


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 










 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/04/201935.100.000 kr.42.900.000 kr.104.1 m2412.103 kr.
12/01/201521.250.000 kr.22.000.000 kr.104.1 m2211.335 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Austurberg 10
Bílskúr
Opið hús:09. feb. kl 18:30-19:00
Skoða eignina Austurberg 10
Austurberg 10
111 Reykjavík
107 m2
Fjölbýlishús
413
629 þ.kr./m2
67.300.000 kr.
Skoða eignina Súluhólar 4
Bílskúr
Skoða eignina Súluhólar 4
Súluhólar 4
111 Reykjavík
111.3 m2
Fjölbýlishús
413
610 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturberg 74
Skoða eignina Vesturberg 74
Vesturberg 74
111 Reykjavík
98.9 m2
Fjölbýlishús
413
656 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hrafnhólar 2
Skoða eignina Hrafnhólar 2
Hrafnhólar 2
111 Reykjavík
93.7 m2
Fjölbýlishús
412
661 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin