Croisette - Knight Frank á Íslandi kynnir til sölu glæsilega 129,5 fm 2-3ja herbergja rúmgóða íbúð við Austurhöfn sem er afar vönduð bygging við hjarta miðbæjarins í Reykjavíkurhöfn. Sérmerkt stæði í bílakjallara.
Eignirnar í Bryggjugötu og Reykjastræti eru einfaldlega í algjörum sérflokki hérlendis.
Rúmgóð og mjög falleg íbúð á 2.hæð með aðgengi út í fallegan inngarð Austurhafnar sem stækkar rýmið mikið.
Möguleiki á að útbúa annað herbergi í stofu, þar sem hún er rúmgóð.
Íbúðin er skráð 129,5 fm og inní þeirri tölu er 16,2 fm geymsla í sameign. Komið er inn í rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi þaðan er gengið inn í alrými með stóru eldhúsi með eldunareyju. Svalir sem snúa í átt að Reykjastræti sem iðar að mannlífi.
Baðherbergi með stórri sturtu, baðkari og fallegum innréttingum m.a. fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi er rúmgott og er með fataherbergi. Möguleiki að útbúa auka svefnherbergi inní stofu.
Sérsmíðaðar innréttingar með þykkari spón frá Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum. Kvarts borðplötur við eldhúsvask og marmaraflísalögð eyja.
Afar vönduð tæki í eldhúsi frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, frystir, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi til að stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.
Fallegar gardínur eru í allri íbúðinni.
Eikarparket í hæsta gæðaflokki.
Íbúðin er frábærlega staðsett í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu.
Hágæða fasteign í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.
Íbúðin er nýmáluð og yfirfarinn. Tilbúinn til afhendingar.
Hægt er að skoða íbúðar hér í þrívídd.Nánari upplýsingar veita: Styrmir Bjartur Karlsson Framkvæmdastjóri og lfs., í síma 899 9090, tölvupóstur styrmir@croisette.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette - Knight Frank fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.