Fimmtudagur 5. nóvember
Fasteignaleitin
Opið hús:09. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 5. nóv. 2026

Suðurgata 94

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
154.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
95.900.000 kr.
Fermetraverð
621.920 kr./m2
Brunabótamat
72.800.000 kr.
Byggt 1990
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
22184761
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir fasteignir og Sigurður Samúelsson Lgf  | ss@aldirfasteignir.is kynna:

Rúmgóð og björt, 4ra herbergja sérhæð með yfirbyggðum svölum á þriðju og efstu hæð ásamt bílskúr á frábærum stað í nálægð við miðbæ Hafnarfjarðar. Útsýni yfir smábátahöfnina, Suðurbæjarlaug í næstu götu og göngufæri í verslanir og alla helstu þjónustu. Sérinngangur og rúmgóður bílskúr.

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is

Nánari lýsing eignar:
Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi, gengið upp stiga í íbúð.
Stofa, eldhús og borðstofa er í björtu og rúmgóðu alrými með mikilli lofthæð með parket á gólfi og útgengt á upphitaðar lokaðar svalir með flísum á gólfi. Fallegt útsýni út á sjó.
Eldhús er með góðu skápa- og borðplássi, tengi fyrir uppþvottavél, keramik helluborð og flísar á gólf.
Borðstofa með stórum gluggum og fallegu útsýni upp Suðurgötuna. 
Hol er rúmgott með parket á gólfi og tengir saman rými íbúðar.
Svefnherbergin eru þrjú með fataskápum og dúk á gólfi. 
Baðherbergi með upphengdu salerni, sturtu og flísar á gólfi, niðurdraganlegur stigi upp á geymsluloft.
Þvottahús með vask og hillur, flísar á gólfi.

Bílskúr er mjög rúmgóður með rafdrifinni innkeyrsluhurð og gönguhurð. Bílastæði sem fylgja eru fyrir framan bílskúr. Hitalagnir í bílastæði og tröppum.

Góð eign á vinsælum stað í nálægð við miðbæ Hafnarfjarðar, veitingastaði, smábátahöfnina og fallegar gönguleiðir við sjóinn. Einnig stutt í alla helstu þjónustu, svo sem leikskóla, skóla, verslanir og sundlaug.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson lgf | ss@aldirfasteignir.is og Freyja Rúnarsdóttir lgf | freyja@aldirfasteignir.is eða 694-4112
---------------------------------------------------------------

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut 45
Skoða eignina Hjallabraut 45
Hjallabraut 45
220 Hafnarfjörður
157,5 m2
Raðhús
43
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47
Skoða eignina Hjallabraut 47
Hjallabraut 47
220 Hafnarfjörður
157,5 m2
Raðhús
43
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Stuðlaberg 98
Bílskúr
Skoða eignina Stuðlaberg 98
Stuðlaberg 98
221 Hafnarfjörður
169,9 m2
Raðhús
614
735 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Grænatún 20A
Heitur pottur
Skoða eignina Grænatún 20A
Grænatún 20A
200 Kópavogur
164,3 m2
Raðhús
523
912 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin