Domus fasteignasala á Norðurlandi vestra kynnir vel staðsett einbýlishús við Brekkubyggð 5 á Blönduósi.
Smelltu hér til að skoða kynningarmyndband um eignina.Um er að ræða 175 fm eign með bílskúr, byggða árið 1973, á eftirsóttum stað með einstöku útsýni yfir Húnaflóa.
Frá húsinu nýtur víðáttumikið útsýni til vesturs yfir Húnaflóa, Vatnsnes, Strandir og til fjalla. Á efri hæð eru svalir sem bjóða upp á stórkostlega kvöldsýn og fallegt umhverfi.
Eignin skiptist í:Neðri hæð:Forstofa, hol, stofa, eldhús, búr, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús með útgengi á baklóð.
Efri hæð:Stofa, tvö svefnherbergi,
sauna og snyrting með sturtu, auk svala með stórbrotnu útsýni.
Nánari lýsing:Forstofa: Flísalögð með fataskáp og fatahengi.
Hol og stofa: Frá forstofu er komið inn í hol, þaðan eru tvö þrep niður í rúmgóða stofu. Parket er á gólfi.
Eldhús: Eldhús er með borðkrók og flísum á gólfi. Innrétting var vönduð í upphafi en hefur elst. Kalt búr er á gangi við eldhús.
Þvottahús: Rúmgott með nýlegum innréttingum, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Útgengt á baklóð.
Svefnherbergi: Alls fjögur herbergi, tvö á hvorri hæð. Hjónaherbergi er með rúmgóðum skápum.
Baðherbergi: Flísalagt með snyrtilegri innréttingu.
Rúmgóð sauna er inn af baðherbergi á efri hæð.
Efri hæð / baðstofa: Notaleg setustofa undir súð með útgengi á vestursvalir. Möguleiki er á að loka svölunum og stækka þannig rýmið.
Bílskúr: Sér bílskúr, 25,6 fm.
Viðhald og ástand:Svalir þarfnast endurbóta. Núverandi lausn hefur verið gerð til bráðabirgða þar sem þéttiefni var sett í sprungur til að stöðva leka, og hefur það skilað góðum árangri síðastliðið sumar. Hins vegar er halla á svölum ábótavant, sem veldur því að regnvatn á ekki greiða leið frá þeim og getur leitt til raka í veggjum.
Rakablettir sjást í lofti í stofu og eru þeir tilkomnir vegna fyrri leka frá svölum. Um er að ræða eldri ummerki sem ekki hefur verið gengið frá að fullu.
Þakkantur eignarinnar þarfnast viðhalds og endurbóta.
Endurbætur:-Flísar lagðar á þvottahús og forstofu
-Skipt um allt gler og hluta glugga fyrir nokkrum árum
-Nýlegir ofnar í stofu og herbergjum á neðri hæð
-Parket lagt á báðar hæðir
-Nýr fataskápur í forstofu
-Tenging fyrir hraðhleðslustöð (hleðslustöð í leigu frá Orka náttúrunnar)
Lóð: Stór og rúmgóð lóð fylgir eigninni með góðu rými til útivistar.
Eign sem býður upp á mikla möguleika á fallegum stað með einstöku útsýni.
Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 sol@domus.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.