Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is kynnir
:íbúð 409 - 3ja herbergja íbúð á 4. hæð með stæði í bílageymslu. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 79,6 fm, þar af er sérgeymsla er 7,8 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í alrými, svefnherbergi og vinnukrókur/ skrifstofa sem auðvelt er að breyta í svefnherbergi, baðherbergi og þvottaaðstaða inn á baðherbergi. Sérgeymsla, 7,8 fm fylgir íbúðinni. Svalir frá stofu snúa í norður. Sameiginlegar svalir er í húsinu.
SÝNUM DAGLEGA BORGARTÚN 24 - skrifstofa Betri Stofunnar er í Borgartúni 30.
HeimasíðaGlæsilegar nýjar íbúðir í vel staðsettu fjölbýlishúsi í Borgartúni í Reykjavík. Íbúðir afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum. Stæði í bílageymslu. Útsýni.
Sérgeymsla 7,8 fm fylgir íbúðinni. Sérstæði í bílageymslu (B04) fylgir íbúðinni.
Borgartún 24 er nýtt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Flutt var inní fyrstu íbúðir sumarið 2024. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður, á 6. hæð er sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.
Frágangur íbúða að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.
Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð. Í bílakjallara eru 39 bílastæði, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða, og 30 bílastæði eru á lóð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.
Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati.Bókið skoðun:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir, sími 899 5533 - löggiltur fasteignasali - netfang: gudbjorg@betristofan.is