Mánudagur 15. júní
Fasteignaleitin
Skráð 15. júní 2026

Miðgarður 11

EinbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
304.3 m2
8 Herb.
Verð
149.000.000 kr.
Fermetraverð
489.648 kr./m2
Fasteignamat
130.850.000 kr.
Brunabótamat
154.050.000 kr.
JM
Júlíus M Steinþórsson
Bílskúr
Fasteignanúmer
2090043
Landnúmer
127846
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð

Miðgarður 11, Reykjanesbær
Eignasala kynnir glæsilegt og einstaklega vel viðhaldið 304,3 fm einbýlishús með tveimur bílskúrum á frábærum stað í Reykjanesbæ.
Húsið stendur innst í botnlanga á rólegum og skjólgóðum stað þar sem næði og friðsæld eru í fyrirrúmi. Miðgarður 11 er efsta húsið í götunni og nýtur einstakrar staðsetningar við útivistarsvæði bæjarins. Rétt fyrir ofan húsið taka við vinsælir göngustígar, fallegt náttúruumhverfi og frisbígolfvöllur sem gerir staðsetninguna sérstaklega eftirsótta fyrir fjölskyldur og útivistarfólk.
Samkvæmt HMS er eignin alls 304,3 fm, þar af 194,8 fm íbúðarhús, 42,3 fm garðskáli, 53,5 fm sambyggður bílskúr og 56 fm tvöfaldur stakstæður bílskúr. Eign sem býður upp á mikla möguleika fyrir stórar fjölskyldur, atvinnurekstur heima eða þá sem vilja rúmgóð aukarými.
Nánari lýsing
Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðu skápaplássi. Gestasnyrting hefur verið endurnýjuð og er snyrtileg og vel búin.
Frá forstofu er gengið inn í þvottahús með góðri innréttingu og miklu skápaplássi. Þaðan er útgengi á skjólgóða verönd með heitum potti.
Aðalrými hússins samanstendur af björtu og rúmgóðu alrými með stofu, borðstofu, sólstofu og eldhúsi. Í stofu er arinn sem setur hlýlegan svip á rýmið. Gólfefni í stofu, borðstofu, holi og herbergjum er gegnheil eik í fallegu fiskibeinamynstri.
Glæsilegur garðskáli, um 42 fm að stærð, var byggður við húsið árið 1999. Þar er gólfhiti og stórir gluggafletir sem skapa einstaka tengingu við garðinn og útisvæðin. Rennihurð er úr sólstofu út á verönd.
Eldhúsið er vel skipulagt með fallegri innréttingu, steinborðplötum og vönduðum Miele heimilistækjum. Tvöfaldur ísskápur fylgir eigninni.
Svefnherbergin eru þrjú í dag en áður voru þau fimm. Auðvelt er að breyta skipulaginu aftur og fjölga herbergjum eftir þörfum. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi.
Baðherbergið var endurnýjað árið 2023 og er einstaklega rúmgott með stórum sturtuklefa. Frá baðherbergi er útgengt á verönd.
Innangengt er í 53,5 fm sambyggðan bílskúr sem í dag er nýttur sem vinnustofa og fjölnota rými. Innst í honum er afstúkað herbergi og býður rýmið upp á fjölmarga möguleika, meðal annars fyrir fleiri svefnherbergi, skrifstofu eða tómstundaaðstöðu.
Auk þess er á lóðinni 56 fm tvöfaldur stakstæður bílskúr með tveimur hurðum og geymslulofti.
Lóð og útisvæði
Lóðin er einstaklega falleg, gróin og vel hirt. Sólpallar eru beggja vegna hússins sem tryggir sól frá morgni til kvölds. Skjólgóð verönd með heitum potti skapar notalega umgjörð um útiveru allt árið um kring.
Bílastæði eru rúmgóð við húsið og hitalagnir eru í bílaplani. Þá eru einnig góð bílastæði í enda götunnar.
Helstu endurbætur
Þak endurnýjað árið 2016.
Vatns- og raflagnir endurnýjaðar á árunum 2012–2025.
Hitaveitugrind endurnýjuð árið 2023.
Baðherbergi endurnýjað árið 2023.
Gestasnyrting endurnýjuð árið 2025.
Eldhústæki endurnýjuð á síðustu árum.
Hér er um að ræða einstaklega vandaða fjölskyldueign á einum eftirsóttasta stað Reykjanesbæjar þar sem náttúra, útivist, næði og þjónusta fara saman. Eign sem hefur fengið  viðhald í gegnum tíðina og býður upp á mikla möguleika fyrir næstu eigendur.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Hafnargötu 90a í síma 420607 eða  tölvupóstur julli@eignasala.is og joi@eignasala.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1993
56 m2
Fasteignanúmer
2090043
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
23.400.000 kr.
Byggt 1974
53.5 m2
Fasteignanúmer
2090043
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
18.600.000 kr.

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Garðhús 33
Opið hús:25. júní kl 17:00-17:30
Garðhús_33-38.jpg
Skoða eignina Garðhús 33
Garðhús 33
112 Reykjavík
174.7 m2
Raðhús
524
781 þ.kr./m2
136.500.000 kr.
Skoða eignina Fljótasel 22
Bílskúr
Opið hús:24. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Fljótasel 22
Fljótasel 22
109 Reykjavík
260.5 m2
Raðhús
724
537 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Elliðabraut 6 (Bílskúr-Þaksvalir)
Bílskúr
Bílastæði
Elliðabraut 6 (Bílskúr-Þaksvalir)
110 Reykjavík
160.5 m2
Fjölbýlishús
523
797 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7a (301)
Eirhöfði7a_301.jpg
Eirhöfði 7a (301)
110 Reykjavík
137.3 m2
Fjölbýlishús
423
1034 þ.kr./m2
141.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin