Fallegt og vel skipulagt 4-5 herbergja endaraðhús á rólegum og fjölskylduvænum stað á Hellu.- Sveitakyrrð og friðsælt umhverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu
- Vel skipulagt endaraðhús með þremur rúmgóðum svefnherbergjum og björtu alrými.
- Sólpallur með skjólgirðingu sem skapar notalegt útisvæði
- Innbyggður bílskúr með innangengi í íbúð.
Nánari upplýsingar veita:Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar er 136,60 m² samkv. HMS.
Eignin skiptist í forstofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Innangengt er í bílskúr frá þvottahúsi.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð forstofa með þægilegu aðgengi inn í alrými eignarinnar.
Eldhús: Fallegt og vel skipulagt eldhús með góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél ásamt vönduðum heimilistækjum. Eldhúsið er opið inn í stofu og borðstofu og myndar bjart og rúmgott alrými.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með góðri lofthæð og stórum gluggum sem veita fallega náttúrulega birtu. Útgengt er á sólpall með skjólgirðingu.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi II: Bjart og rúmgott herbergi með fataskáp.
Svefnherbergi III: Bjart og rúmgott herbergi með fataskáp.
Svefnherbergi/skrifstofa: Rúmgott herbergi sem hentar vel sem gestaherbergi eða skrifstofa. Parket á gólfi, útgengt út á Sólpall.
Baðherbergi: Baðherbergi með fallegri vaskinnréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og rúmgóðri "walk-in" sturtu með glervegg. Flísar á gólfi og baðþyljur á hluta veggja.
Þvottahús: Þvottahús með innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Innangengt er þaðan í bílskúr. Flísar á gólfi.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með vélslípuðu gólfi, gönguhurð út á baklóð og rafdrifinni bílskúrshurð. Búið er að útbúa herbergi inn af bílskúr sem notað er sem skrifstofa í dag.
Ath - Skipulagi hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum. Mynd af bílskúr hefur verið unnin með aðstoð tölvutækni til að gefa hugmynd um nýtingu.
Lóð: Snyrtileg lóð með grasflöt, sólpalli með skjólgirðingu og drenmöl í bílaplani. Útgengt er á pallinn bæði úr stofu og bílskúr.
Hella býður upp á notalegt og fjölskylduvænt umhverfi þar sem öll helsta þjónusta er til staðar. Á staðnum er glæsilegur leik- og grunnskóli með framúrskarandi aðstöðu, frábær sundlaug, íþróttamiðstöð, verslanir og heilsugæsla. Falleg náttúra og rólegt umhverfi gera Hellu að eftirsóttum stað fyrir fjölskyldur og þá sem vilja njóta lífsins í friðsælu umhverfi.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.