Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð með stórum sólpalli í eftirsótta Akrahverfinu í Garðabæ.
Helstu kostir:Stór og sólríkur pallur sem snýr til suðausturs.
Bjart og opið alrými með rúmgóðri stofu, borðstofu og eldhúsi.
Þrjú góð svefnherbergi með möguleika á að útbúa það fjórða.
Birt stærð samkvæmt HMS: 139,9 fm.
Eftirsótt staðsetning í fjölskylduvænu hverfi með stuttu í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:
Sara Wium Hermannsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala
891-6193 | sara@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson, löggiltur fasteignasali
775-4000 | palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.isRáð fyrir kaupendurUm er að ræða bjarta og fallega íbúð með gluggum á þrjá vegu í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi í hinu vinsæla Akrahverfi á Arnarneshæð. Skipulag eignarinnar er einstaklega gott og hentar jafnt fjölskyldum sem þeim sem vilja rúmgott og þægilegt heimili.
Forstofa er með fataskáp.
Eldhús er opið inn í stofu og borðstofu og myndar fallegt alrými. Þar er rúmgóð innrétting með eyju, góðu skápaplássi, helluborði, viftu og ofni í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa eru einstaklega rúmgóðar og bjartar. Þaðan er gengið út á stóran sólpall sem snýr til suðausturs og býður upp á notalega útiveru stóran hluta dags.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum og parketi á gólfi. Fyrir hendi er fordæmi í húsinu fyrir því að útbúa fjórða svefnherbergið án þess að skerða nýtingu eignarinnar verulega.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og búið innréttingu, upphengdu salerni, baðkari og sér sturtu.
Þvottahús er innan íbúðar sem eykur þægindi í daglegu lífi.
Í sameign er sérgeymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Staðsetning
Akrahverfið á Arnarneshæð er eitt vinsælasta fjölskylduhverfi Garðabæjar. Þaðan er stutt í leikskóla, grunn- og framhaldsskóla, íþróttamannvirki, fallegar gönguleiðir og alla helstu þjónustu.
Falleg, vel skipulögð fjölskylduíbúð á frábærum stað – eign sem vert er að skoða.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.