Föstudagur 17. júlí
Fasteignaleitin
Opið hús:21. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 17. júlí 2026

Haukdælabraut 68

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
374.5 m2
10 Herb.
6 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
337.900.000 kr.
Fermetraverð
902.270 kr./m2
Fasteignamat
239.350.000 kr.
Brunabótamat
204.100.000 kr.
Mynd af Vera Sigurðardóttir
Vera Sigurðardóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 2021
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2328855
Landnúmer
214810
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
Nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
DOMUSNOVA VERA KYNNA EINBÝLISHÚS MEÐ 3JA HERBERGJA AUKA ÍBÚÐ OG BÍLSKÚR VIÐ HAUKDÆLABRAUT 68, 113 REYKJAVÍK.
EIGNIN ER EFST OG INNARLEGA Í BOTNLANGA MEÐ ÓSKERTA NÁTTÚRU Í BAKGARÐINUM OG MIKIÐ ÚTSÝNI.


Eignin er skráð um 375 m2 og um 50 m2 óskráð rými samtals um 425 m2 og skiptist þannig:
Aðal íbúð                                  c.a. 275 m2
Bílskúr plús óskráð rými        c.a. 90 m2
Auka íbúð                                 c.a. 60 m2

HANDBÓK MEÐ ÝTARLEGUM UPPLÝSINGUM UM BYGGINGU Á HÚSINU OG UPPLÝSINGAR UM ÞÁ SEM KOMU AÐ BYGGINGU HÚSSINS.

Hönnunarstjóri Oddur Víðisson dap
Húsið er staðsteypt og járnbent, byggt á steyptum sökklum með steypta botnplötu. Þak er staðsteypt og járnbent.
Húsið er einangrað að utan með 100mm steinullar veggplötum 80 kg/m3 Húsið er klætt með álplötuklæðningu frá Áltak ehf á undirkerfi frá þeim.

Milliveggir milli herbergja eru hlaðnir út LEMGA hleðslustein frá steypustöðinni aðrir veggir eru steyptir.
Gluggar og útihurðir koma frá IdealCombi í Danmörku. Gluggar eru timbur-ál. TME Gluggar ehf sá um ísetningu.
Pípulagnir eru lagðar samkvæmt teikningu af Kraftlögnum ehf.
Rafkerfi hússins var lagt af Raflausnum ehf. Notast var við KNX stýrikerfi fyrir rafkerfi.
Raflagnahönnun Verkhönnun Verkfræðiráðgjöf.
Innréttingar Parki og framleiddar af Schmidt. Uppsetning unnin af Trévídd ehf.
Innihurðir eru smíðaðar hjá JP Innréttingum.
Gólfefni Parket kemur frá Birgisson Flísar koma frá Flísabúðinni og voru lagðar af JK múr EHF.
Hiti í plani og stétt fyrir framan húsið.


Nánari upplýsingar veitir:
Vera Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali / s. 8661110 / vera@domusnova.is


Fasteignamat 2027 kr. 246.350.000

Neðri hæð:
Forstofa: Með stórum flísum á gólfi extra há inngöngu hurð með rafmagni, stigi upp á efri hæð með sérsmíðuðu handriði. 
Fataherbergi fyrir útifatnað: Flísar á gólfi ekki búið að innrétta.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi, upphengt WC og vaskur.
Fjölskylduherbergi/leikherbergi: Ca 12-15 m2 með stórri reyklitaðri glerhurð, teppi á gólfi og öflug loftræsting.

Efri hæð:
Eldhús/ borðstofa/ stofa: Með vandaðri sérsmíðaðri innréttingu frá parka. stór tækja skápur, innbyggður ísskápur, frystiskápur og uppþvottavél. Stór eyja og steinn frá Orgus á borðum. Gegnheilt niðurlímt parket á gólfum. Gólfsíðir gluggar og rennihurð út á pall. Hljóðeinangrun í loftum og mikil lofthæð. Það á eftir að smíða efri pallinn en það er til efni í hann gert er ráð fyrir heitum potti þar.
Sjónvarpsstofa:  Gegnheilt niðurlímt parket á gólfum útgengt út á litlar austur svalir.
Hjónasvíta: Gegnheilt niðurlímt parket á gólfum. Rennihurð út á pall. Rúmgott fataherbergi með sérsmíðuðum skápum sem voru að koma á eftir að setja upp. Baðherbergi með flísum, sturtu, upphegndu WC og innréttingu.
Herbergi: 3 mjög rúmgóð barnaherbergi.  Gegnheilt niðurlímt parket á gólfum.
Baðherbergi: Flísar, sturta, frístandandi baðkar, upphengt WC og innrétting.
Þvottahús: Mjög rúmgott með góðri innréttingu og hurð út á pall skápar yfir lagnir eru til á eftir að setja þá upp.

Bílskúr plús óskráð rými:
Með rafmagnshurð og glugga, PPC plast motturá gólfi. Innaf eru 2 óskráð rými annað er nýtt sem líkamsræktaraðstaða og hitt sem geymsla.

Auka íbúð c.a. 60 m2:
Eldhús/ borðstofa/ stofa: Með góðri innréttingu og dúk á gólfi.
Hjónaherbergi: Dúk á gólfi og skápum. 
Herbergi: Með dúk á gólfi.
Baðherbergi: Flísar, sturtu, upphegt WC og innrétting fyrir þvottavél.
Íbúðin er með sér inngangi og góðu útisvæði fyrir framan.

Þetta er stórglæsileg eign á friðsælum stað við náttúruna sjón er sögu ríkari.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2021
36.3 m2
Fasteignanúmer
2328855
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.950.000 kr.

Myndir (64)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grasarimi 20
Skoða eignina Grasarimi 20
Grasarimi 20
112 Reykjavík
193.7 m2
Raðhús
523
748 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Lindarberg 8
Bílskúr
Skoða eignina Lindarberg 8
Lindarberg 8
221 Hafnarfjörður
393.6 m2
Einbýlishús
837
597 þ.kr./m2
235.000.000 kr.
Skoða eignina Klapparhlíð 38
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:20. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Klapparhlíð 38
Klapparhlíð 38
270 Mosfellsbær
139.8 m2
Raðhús
413
929 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Logafold 154
Heitur pottur
Skoða eignina Logafold 154
Logafold 154
112 Reykjavík
285.8 m2
Einbýlishús
936
594 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin