Fimmtudagur 25. júní
Fasteignaleitin
Skráð 25. júní 2026

Erluás 17

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
315.2 m2
6 Herb.
7 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
169.600.000 kr.
Brunabótamat
107.500.000 kr.
Mynd af Stefán Rafn Sigurmannsson
Stefán Rafn Sigurmannsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2255739
Landnúmer
186982
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
Síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt og mixað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Lóð
0
Upphitun
Sérhiti
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Ás fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um að skoða eignir sérstaklega vel.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Húsið er skráð samkvæmt fmr 245,2 fm að stærð en er í raun stærra, samkvæmt eigendum eignarinnar er auka rýmið þar sem auka íbúðin er í dag í kringum 60-70 fm að stærð (Ósamþykkt) og er því stærð hússins ca. 315,2 fm samkvæmt eigendum, vakin er athygli á þessu til væntanlegra kaupanda.
Virkilega fallegt einbýlishús á tveim hæðum með bílskúr og auka íbúð á góðum stað í Áslandinu, Hafnarfirði. Steinsnar frá skóla og leikskóla. Tvennar svalir og fallegt útsýni. Húsið er steinað að utan því lítið viðhald á húsinu að utan. Eignin er alls 245,2 fm að stærð samkvæmt fmr, sem skiptist þannig að neðri hæð er 91,2 fm, efri hæð 122,8 fm og bílskúrinn 31,2 fm. Að auki er ca. 85 fm afar góð þriggja herbergja auka íbúð með sér inngangi á hlið hússins, sem aðal íbúðin finnur lítið fyrir.

- Gegnheil hnota á gólfum hússins.
- Nýtt snjóbræðslukerfi á bílaplani og gönguleið að húsi, einnig er nýr varmaskiptir í húsinu fyrir neysluvatn.
- Teikningar fyrir nýju skipulagi, ásamt uppteiknuðum garði sem kemur vel út.
- Nýlega steyptir veggir fyrir framan hús.
- Tröppur niður í garðinn og að auka íbúð sem voru steyptar síðast liðið sumar.
- Rafmagn endurnýjað. Leiktæki í garði sem fylgja með.
- Hleðslustöð fyrir tvo bíla.
- Loftræsting á neðri hæð hússins inn og út.
- Lýsingu, heitum potti og öðru í húsinu er appstýrt.

Nánari lýsing:
Efri hæð: Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Innangengt er úr forstofu inn í bílskúr. Forstofuherbergi með flísum á gólfi og skáp (teiknað sem þvottahús). Gangur með parket á gólfi. Stofa og borðstofa í björtu alrými með parket á gólfi, útgengt á tvennar svalir í suð/vestur með góðu útsýni. Möguleiki að setja upp arinn í stofunni. Eldhúsið er mjög snyrtilegt með hvítri innréttingu, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél og ísskápur innfellt í innréttingu. Eldunareyja með góðu skúffuplássi. Baðherbergi með sturtu, flísar á gólfi og hluta veggja. Opnanlegur gluggi, handklæðaofn og speglaskápur. Eitt stórt herbergi (raunar tvö, búið að opna á milli herbergja, hægt að breyta aftur), parket á gólfi og skápar.

Neðri hæð:
Milli hæða er parketlagður stigi með næturlýsingu. Tvö barnaherbergi með parket á gólfi Hjónaherbergi sem er mjög rúmgott með skápum og parketi. Glæsilegt baðherbergi með sturtu og baðkari, flísalagt í hólf og gólf, stór speglaskápur. Gólfhiti er á neðri hæð.

Bílskúrinn: Er flísalagður, þvottaaðstaða í enda bílskúrs. Varmaskiptir, hurðaopnari Heitur pottur er á palli fyrir framan húsið.

Auka íbúð: Sérinngangur og pallur fyrir framan íbúð. Forstofa með flísar á gólfi og skáp. barnaherbergi með parketi á gólfi Hjónaherbergi, rúmgott með parketi á gólfi og skáp. Stofa með gluggum í tvær áttir, parket á gólfi. Eldhús mjög rúmgott með hvítri háglans innréttingu. Baðherbergi með sturtu, flísar á gólfi og veggjum. Handklæðaofn og vaskinnrétting. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherberginu.

Um er að ræða afar vandaða og flott eign sem er virkilega vel staðsett í Áslandinu, Hafnarfirði í barngóðu hverfi,
þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og skemmtilegar gönguleiðir t.d í kringum hina vinsælu Ástjörn. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veitir: 
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
31/10/201664.200.000 kr.67.000.000 kr.245.2 m2273.246 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2004
31.2 m2
Fasteignanúmer
2255739
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.200.000 kr.

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rauðhella 4
Bílskúr
Skoða eignina Rauðhella 4
Rauðhella 4
221 Hafnarfjörður
130 m2
Atvinnuhúsn.
1
399 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Nónhamar 4
Skoða eignina Nónhamar 4
Nónhamar 4
221 Hafnarfjörður
80 m2
Fjölbýlishús
312
856 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvegur 17
Skoða eignina Kirkjuvegur 17
Kirkjuvegur 17
625 Ólafsfjörður
76.8 m2
Einbýlishús
312
389 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Altaona golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Altaona golf
Spánn - Annað
585 m2
Einbýlishús
544
493 þ.kr./m2
288.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin