Fasteignamiðlun Grafarvogs og Anna F Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, kynna í einkasölu eignina við Hvassaleiti 58, 103 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 04-04, fastanúmer 203-2228 birt stærð 76.4 fm. ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veita Anna F Gunnarsdóttir löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali sími: 892-8778, anna@fmg.is og Ólafur Kristjánsson Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 786-1414, tölvupóstur olafur@fmg.is.
2ja herbergja íbúð á 4. hæð í þessu vinsæla húsi fyrir heldri borgara. Sem er hönnuð af Gylfa Guðjónssyni og Ingimundi Sveinssyni sem eru margverðlaunaðir arkitektar.
Þvottahúsið er sameiginlegt á sömu hæð og íbúðin með þvottavél og þurrkara.
Staðsetning eignarinnar er góð og stutt í alla þjónustu.
Þegar inn er komið tekur við hol með fataskáp og parketlögð stofa og borðstofa og þaðan er útgengt á suðvestur svalir.
Opið inn í eldhús sem er með hvítri beyki innréttingu, parket á gólfi.
Svefnherbergið er með innbyggðum skáp og parket á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, innréttingu og sturtu.
Íbúðinni fylgir sérgeymsla á hæðinni og einnig rúmgóð geymsla í kjallara.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Innifalið í húsfélagsgjaldi er þrif á sameign, umhirða á lóð, allt rafmagn í sameign, allur hitakostnaður, húseigendatrygging og framkvæmdasjóður. Þeir einir geta keypt sér eignir í húsinu sem eru orðnir 63 ára að aldri.
Á jarðhæð hússins er félagsmiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar og þar er boðið upp á ýmsa þjónustu, t.d. heitan mat í hádeginu og miðdegiskaffi.
Einnig er þar að finna vinnustofu, hárgreiðslustofu og fótaaðgerðarstofu. Mikið er um alls konar félagsstarf, t.d. upplestur, ýmis námskeið, skemmtanir, gönguferðir og margt fleirra.
Matur og fleira, endilega pantið mat til að kynnast íbúum.Fasteignamiðlun Grafarvogs vantar eignir af öllum stærðum og gerðum til sölu, ekki hika við að hafa samband og fáið sölumat ykkur að kostnaðarlausu.
Þeir sem leita að eignum í Grafarvogi og Grafarholti leita til okkar á Fasteignamiðlun Grafarvogs, sími 8928778. Ekki hika við að hafa samband og fá frítt sölumat.
Við erum staðsett í Spönginni, við hliðina á Bónus, það er alltaf heitt kaffi hjá okkur.