Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali, og Hús fasteignasala, kynna í einkasölu eignina Austurvegur 21B, 800 Selfoss.
Snyrtileg þriggja herbergja íbúð með sérinngangi í steinsteyptu þríbýlishúsi miðsvæðis á Selfossi. Íbúðin er skráð 98.3 fm ásamt 5,6fm geymslu, samtals 103,9fm.
Nánari lýsing:
Forstofa er snyrtileg með flísum á gólfi og fatahengi.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp.
Innrétting og tæki í eldhúsi var allt endurnýjað árið 2020.
Gott baðherbergi með upphengdu wc, handklæðaofni og vaskaskáp, allt endurnýjað ásamt gólfefnum árið 2020/2021.
Barnaherbergi eru tvö, ný gólfefni.
Á gangi er stór fataskápur og gegnheilt eikarparket á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð þar sem útgengt er út á svalir. Gegnheilt eikarparket er á gólfi.
Íbúðin hefur fengið talsverðar endurbætur seinustu ár má þar helst nefna:
Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjað 2020/2021.
Baðherbergi tekið í gegn 2022, innrétting, klósett,sturta, gólfefni og lagnir.
Forstofa var flísalögð 2020/2021.
Gólf á gangi og þvottahúsi í sameign var epoxy húðað.
Parket var slípað og lakkað árið 2020/2021.
Frárennslislagnir voru yfirfarnar og fóðraðar 2024.
Skipt var um járn á þaki ásamt pappa árið 2024.
Raflagnir, dregið var í allt nýtt árið 2021, ný ljós, tenglar og tafla. Led lýsing í allri íbúðinni.
Parket í barnaherbergjum hefur verið endurnýjað.
Húsið þarfnast viðhalds að utan.
Sameiginlegt þvottahús er í sameigninni og þar er 5,6 fm. sérgeymsla sem fylgir íbúðinni.
Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 846-6581, tölvupóstur ragna@husfasteign.is.
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.