** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 4ra herbergja mikið endurnýjuð íbúð á fjórðu og efstu hæð við Álfheima 38, rétt við Laugardalinn. Eignin er skráð 92,5 m2, þar af íbúð 89 m2 og geymsla 3,5 m2. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu, eldhús, 3 svefnherbergi, og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Geymsla er í sameign í kjallara. Eignin hefur fengið gott viðhald undanfarin ár. Skipt hefur verið um gólfefni, ný eldhúsinnrétting, baðherbergi verið tekið í gegn og nýjar innihurðir. Fallegt útsýni og frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu í Glæsibæ og Skeifunni. Vinsæl útivistarsvæði og afþreying í Laugardalnum aðeins steinsnar frá.Samkvæmt upplýsingum frá húsfálagi þá hefur húsið fengið gott viðhald á undanförnum árum. Meðal annars var húsið múrviðgert og málað árið 2023 og komið fyrir hitavír í þakrennum sama ár. Árið 2024 var skipt um allar lofttúður á þaki. Skipt var um járn á þaki árið 2017. Skólplagnir voru endurnýjaðar árið 2015 og drenlagnir í kringum alla blokkina árið 2008.Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Lýsing eignar:Forstofa/hol er með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu, uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og viftu.
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Útgengt er á svalir til suðurs.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er lítið með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu, góðri innréttingu með handlaug, handklæðaofni.
Aðstaða fyrir fyrir þvottavél og þurrkara.Sérgeymsla 3,5 m2 er í sameign í kjallara.
Sameiginleg hjólageymsla er í sameign í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er kr. 69.600.000
Verð kr. 72.500.000,-