Fimmtudagur 3. september
Fasteignaleitin
Opið hús:08. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 3. sept. 2026

Sæbólsbraut 53

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
172.8 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
152.900.000 kr.
Fermetraverð
884.838 kr./m2
Brunabótamat
94.600.000 kr.
Byggt 1984
Svalir
Pallur
Fasteignanúmer
20655891
Húsgerð
Raðhús

Eignamiðlun kynnir:

Fallegt og vel skipulagt 172,8 fm endaraðhús á tveimur hæðum, þar af 22,6 fm bílskúr, á einstaklega rólegum og fjölskylduvænum stað innarlega í botnlanga við Sæbólsbraut. Eignin er björt og rúmgóð, þrjú svefnherbergi, sjónvarpsrými, baðherbergi og gestasnyrting, góðar stofur og einstaklega fallegur og skjólgóður garður sem snýr til suðurs. Frá efri hæð er útgengi á svalir með sjávarútsýni. Húsið hefur fengið gott viðhald og hentar sérlega vel fyrir fjölskyldufólk sem sækist eftir rúmgóðu húsnæði, góðum útisvæðum og rólegu umhverfi.

**Sækja söluyfirlit** - Allar upplýsingar veitir Lilja: 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

Nánari lýsing:
Aðalhæð
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með granítflísum á gólfi og góðum fataskápum.
Þvottahús: Inn af forstofu er gott þvottahús með innréttingu, vaski og opnanlegum glugga. Þvottavél og þurrkari eru í þægilegri vinnuhæð.
Eldhús: Bjart og rúmgott eldhús með hvítri innréttingu, spanhelluborði, ofni og fallegum háfi. Gert er ráð fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur er við glugga með útsýni yfir gróðursælan garðinn. Granítflísar eru á gólfi.
Stofa og borðstofa: Bjartar og rúmgóðar stofur með góðum gluggum og fallegu samspili við garðinn. Á gólfum er parket. Úr stofu er gengið beint út á sólpall í einstaklega fallegum og skjólgóðum garði sem snýr til suðurs. Garðurinn er gróðursæll og vel staðsettur gagnvart sólu.
Gestasnyrting: Hvít innrétting er undir handlaug, granítflísar á gólfi og veggir að hluta flísalagðir og að hluta timburklæddir.
Fallegur, teppalagður stigi tengir hæðirnar saman. Yfir stiganum er loftgluggi sem hleypir ríkulegri dagsbirtu inn í miðrými hússins.

Efri hæð
Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, sjónvarpsrými og aðalbaðherbergi.
Sjónvarpsrými: Bjart og notalegt miðrými með parketi og góðri lofthæð. Þaðan er útgengi á svalir með fallegu sjávarútsýni. Auðveldlega væri hægt að breyta rýminu í fjórða svefnherbergið. 
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parketi og fataskápum.
Svefnherbergi: Tvö önnur svefnherbergi eru á hæðinni, bæði með parketi á gólfi og mjög rúmgóð.
Baðherbergi: Rúmgott og fallegt baðherbergi með hvítri innréttingu, baðkari og flísalögðum sturtuklefa með glerhlið. Upphengt salerni og handklæðaofn. Gólf og veggir eru flísalögð. Góð lofthæð og opnanlegur gluggi veita rýminu góða birtu og loftun. Baðherbergi var endurnýjað 2016.

Bílskúr: Bílskúrinn er 22,6 fm að stærð með hita og rafmagni. Tengi fyrir heitt og kalt vatn.
Bílaplan: Tvö til þrjú bílastæði eru framan við hús. Snjóbræðsla er í bílaplani.

Sæbólsbraut 53 stendur á rólegum og fjölskylduvænum stað innarlega í botnlanga. Umhverfið einkennist af nálægð við sjó og náttúru og góðum möguleikum til útivistar og gönguferða.

Nánari upplýsingar veitir Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langabrekka 10a
Bílskúr
Opið hús:06. sept. kl 14:30-15:00
Skoða eignina Langabrekka 10a
Langabrekka 10a
200 Kópavogur
164.4 m2
Fjölbýlishús
624
760 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Hjallabraut 47B
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
43
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hafnarbraut 12
200 Kópavogur
113.7 m2
Fjölbýlishús
413
791 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Búðagerði 4
Skoða eignina Búðagerði 4
Búðagerði 4
108 Reykjavík
56 m2
Fjölbýlishús
211
891 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin