Nýtt á skrá! Mikið endurnýjað fjölskylduhús á glæsilegri 790 fermetra gróinni lóð til suðurs, aukaíbúð/útleigueiningu og stórum bílskúr
Eignin er eingöngu sýnd í einkasýningum - Bókið skoðun hjá heimir@fastlind.is
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar glæsilegt 7 herbergja 280,4 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum, með aukaíbúð og stórum bílskúr. Eignin skiptist í 113,4 fermetra aðalhæð, 95,5 fermetra efri hæð, 33,2 fermetra sérstæðan bílskúr sem hefur verið breytt í aukaíbúð og rúmgóða geymslu. Einnig er stór 38,3 fermetra bílskúr. Samtals 280,4 fermetrar að stærð. Sex svefnherbergi eru í húsinu (eitt staðsett í aukaíbúð). Um er að ræða afar vel staðsett hús neðan götu (suðurgarði) með fallegu útsýni í grónu fjölskylduhverfi við Hlégerði 19 í Kópavogi.
Húsið er afar sjarmernandi og ber vel þessi merki að hafa fengið gott viðhald að utan sem innan undanfarin ár og eru innréttingar vandaðar og að mestu sérsmíðaðar. Má þar m.a. nefna að búið er að endurnýja þök, glugga, rafmagn og rafmagnstöflu, ofna- og ofnalagnir, frárennslislagnir, byggt við forstofu, innihurðir, baðherbergi, eldhús, þvottaherbergi, skápar og klæðningu í loftum efri hæðar, aukaíbúð, stofa opnuð o.fl. Sjá nánári samantekt í lok lýsingar.
Aðalhæðin (neðri hæð): Er vel skipulögð með rúmgóðum rýmum og útgengi á góða hellulagða verönd til suðurs þar sem við tekur glæsileg skjólgóð lóð til suðurs. Forstofa, hol sem er opið inn í rúmgóða stofu/borðstofu, eldhús, búrgeymsla, Svefnherbergi I, baðherbergi I, auka forstofa frá austurhlið með geymslu/hitakompu þar fyrir innan.
Efri hæð: Gengið er upp teppalagðan stiga með fallegum stórum glugga til norðurs. Rúmgott hol með góðu skápaplássi, fjögur svefnherbergi (svefnherbergi II-V), baðherbergi II, stórt þvottaherbergi, geymsla og tvennar svalir.
Útleigueining/geymsla (studioíbúð): Er með sérinngangi þar sem gengið er að inngangi frá vesturhlið hússins. Komið inn í opið rými með gluggum til suðurs með eldhúskrók. Baðherbergi staðsett þar fyrir innan. U.þ.b. 1/3 af bílskúr er geymsla með aðgengi í gegnum sérinngang.
Bílskúr: Er stór, eða 38,3 fermetrar að stærð með inngangshurð úr bakgarði og gluggum til suðurs.
Lóðin er 790 fermetrar að stærð. Garður er með grasflöt, fallegum trjágróðri og beðum. Lóðin er skjólgóð og með rúmgóðri hellulagðri verönd til suðurs og glerskála sem tengist aftan við bílskúr. Framan við hús er hellulögð stétt að húsi og fyrir framan bílskúr með snjóbræðslu að hluta. Tvö bílastæði eru fyrir framan hús við bílskúra.
Nánari lýsing:
Aðalhæð.
Forstofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi og góðum skápaplássi.
Hol: Er rúmgott, með parketi á gólfi og opið inn í stofu.
Stofa: Er stór, með parketi á gólfi og gluggum til suðurs og vesturs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi í bakgarð frá stofu.
Eldhús: Hefur verið endurnýjað á smekklegan máta og með kvartz-steini frá Granítsmiðjuni á borðum. Eldhústæki af vönduðustu gerð frá Eirvík, m.a. tveir Miele ofnar og tveir Liebherr kæliskápar með frysti. Miele spanhelluborð og innb. Miele uppþvottavél. Gluggar til vesturs og norðurs ásamt borðkrók.
Búrgeymsla: Er staðsett við eldhús með máluðu gólfi.
Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi og gluggum til suðurs.
Baðherbergi I: Með flísum á gólfi. Flísalögð sturta með glerþili, upphengt salerni og innrétting við vask. Handklæðaofn og gluggi til austurs.
Forstofa II: Inngangur austanmegin við hús. Flísar á gólfi.
Geymsla/hitarými: Með máluðu gólfi og glugga til austurs.
Efri hæð: Gengið er á milli hæða um steyptan teppalagðan stiga stórum glugga til norðurs sem hleypir inn fallegri birtu.
Hol: Er rúmgott, með parketi á gólfi og góðum skápum.
Þvottaherbergi: Er stórt, með dúk á gólfi og gluggum til norðurs og vesturs. Góð innrétting er í þvottaherbergi með vinnuborði, vask og tenglum fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Með dúk á gólfi, glugga til norðurs og útgengi á svalir I.
Svalir I: Snúa til norðurs og eru staðsettar ofan á forstofu hússins.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi og gluggum til austurs.
Baðherbergi II: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask, upphengt salerni og gluggi til austurs.
Svefnherbergi III: Er stórt og með parketi á gólfi. Skápar og gluggi til suðurs.
Svefnherbergi IV: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Svefnherbergi V (hjónaherbergi): Er stórt, með parketi á gólfi, góðum skápum og gluggum til suðurs og vesturs. Útgengi á svalir II.
Svalir II: Snúa til suðurs inn í skjólgóðan bakgarð hússins.
Bílskúr: Er rúmgóður eða 38,3 fermetrar að stærð. Innganghurð aftan við hús í bakgarði. Gluggar til suðurs.
Útleigueining og geymsla (studioíbúð): Í bílskúr, sem er 33,2 fermetrar að stærð og staðsettur vestan megin við húsið. Skiptist u.þ.b. 2/3 studioíbúð og 1/3 geymslu. Bílastæði staðsett þar fyrir fyrir framan.
Opið rými: Með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Eldhúsinnrétting með skápum, eldhúshellu, örbylgjuofni, vask og kæliskáp.
Baðherbergi: Er flísalagt með sturtu, innréttingu við vask og upphengt salerni.
Frábær staðsetning á fjölskylduvænum stað við Hlégerði á Kársnesi Kópavogi. Stutt er í leikskóla, grunnskóla og sundlaug. Fallegar göngu- og hjólaleiðir við fallega náttúruna allt í kring.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
Viðhaldssaga seljanda:
Húsið var byggt árið 1959 og þá sem tvíbýlishús. Húsinu var breytt í einbýlishús árið 1992.
- Endurnýjað þak á íbúðarhús árið 1997 (þarfnast endurmálunar), á austurskúr árið 2009 og á vesturskúr (2026).
- Skipt um alla glugga í húsinu á tímabilinu árin 1989-1992.
- Skipt var um mikið af af glerjum árin 2024-2026.
- Ný rafmagstafla árið 1992 og raflagnir endurnýjaðar í áföngum fram til ársins 1999.
- Endurnýjaðar frárennslislagnir árið 1992 - teknar beint úr út eldhúsi annars vegar og baðherbergi/hitarými hins vegar - endurnýjað utanhúss árið 2010.
- Hitalagnir og ofnar endurnýjað í kringum árið 1999 - búið að skipta um nokkra ofna aftur.
- Baðherbergi á efri hæð flísalagt og sett baðkar árið 1989 - nýjar innréttingar, gólfflísar og tæki árið 2007-2008 og nýr vaskur árið 2026.
- Parket á efri hæð sett niður árið 1992 (orðið nokkuð slitið).
- Eldhús endurnýjað árið 1999 og aftur að mestu árið 2023.
- Þvottaherbergi á efri hæð endurnýjað árið 2006.
- Endurnýjuð loftaklæðning á efri hæð árið 2007.
- Skápar í herbergjum og á gangi/holi efri hæðar árið 2007.
- Innihurðir endurnýjaðar árið 2008.
- Baðherbergi neðri hæðar endurnýjað árið 2008.
- Forstofa byggð við húsið árið 2010-2011.
- Sudioíbúð/geymsla árið 2011.
- Stofa opnuð og skipulagi breytt/stálbita komið fyrir árið 2015.
- Í gildi er leigusamningur er studíóíbúð á föstu verði til janúarloka 2027.