Sunnudagur 22. desember
Fasteignaleitin
Skráð 22. des. 2024
Deila eign
Deila

Grensásvegur 1 F 501

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
90.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
86.900.000 kr.
Fermetraverð
963.415 kr./m2
Fasteignamat
31.100.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Jason Kristinn Ólafsson
Jason Kristinn Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2522194
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
5
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Til austurs
Lóð
0,44
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Betri Stofan og Jason fasteignasali kynnir: Grensásvegur 1 F íbúð 501, sem er með gólfsíðum gluggum og gólfhita. Glæsileg 3ja herbergja, 90,2 fm íbúð á 5. hæð með svölum. Sér þvottahús. Myndir í myndasýningu eru teknar úr sýningaríbúð og hægt er að skoða hana daglega.

Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. T.d. læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og  grunn- og framhaldsskólar í göngufæri. 
 
Nánari lýsing íbúðar 0501
Stórglæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja 90,2 fm íbúð á 5. hæð. Íbúðin er með gólfsíðum gluggum og hita í gólfum. Komið er inn í anddyri með fataskáp. Stórt og bjart opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa þar eru gólfsíðir gluggar. Rúmgott bjart eldhús með eyju með spanhelluborði og fallegum háfi, stofa með útgengi á sér 6,4 fm svalir. Rúmgott hjónaherbergi og með fataskápum á heilum vegg. Barnaherbergi með fataskáp. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting og sturta sem gengið er inní. þvottahús inn í íbúð. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara og er hún 6,2 fm.

Myndir í sýningu eru úr annarri íbúð sem er með sömu innréttingum og sambærilegum tækjum.

Stutt lýsing Grensásvegs 1 A/F:
Húsið er 76 íbúða vandað 7. hæða fjölbýlishús, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd og með stórum gólfsíðum björtum gluggum.  Þær eru afhentar fullbúnar með parketi, nema votrými sem eru flísalögð.   Í hjólageymslu eru stæði fyrir 400 reiðhjól.  Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og koma frá Parka.  Allt parket á gólfum er vandað harðparket. Innfelld LED lýsing í loftum. Gólfhiti er í öllum  íbúðum.

Glæsileg Bosch tæki í öllum íbúðum, spanhelluborð, vandaður ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja ásamt upphengdum háf.  Svartur yfirfelldur eldhúsvaskur með svörtu blöndunartæki frá Hansgrohe. Baðherbergi flísalögð með 60x60 cm flísum frá gólfi til lofts. Innbyggð blöndunartæki í sturtu. Svalahandrið úr gleri. 

Afhending íbúða í F húsi verður í desember 2024 og afhending í A húsi verður í byrjun árs 2025.    

Bílakjallari/bílastæði. 
Við húsið bílakjallara með 183 bílastæðum sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum Parka app sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt.  Í bílakjallara eru hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla. 

Allt myndefni birt með fyrirvara – byggingarnefndarteikningar gilda, ásamt skráningartöflu/eignaskiptasamning varðandi stærðir í fermetrum.

Nánari upplýsingar:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is
Þórir Skarphéðinsson, lögmaður og lögg. fasteignasali, sími 844-9591 eða thorir@betristofan.is
Atli S. Sigvarðsson, sími 899 1178 - löggiltur fasteignasali. - netfang: atli@betristofan.is
Gunnar S. Jónsson, sími 899 5856 - löggiltur fasteignasali. - netfang: gunnar@betristofan.is
Páll Þórólfsson, sími 893 9929 - löggiltur fasteignasali. - netfang: pall@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir, sími 899 5533 -  löggiltur fasteignasali. - netfang: gudbjorg@betristofan.is
Dagrún Davíðsdóttir, sími 866 1763 - löggiltur fasteignasali - netfang: dagrun@betristofan.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grensásvegur 1 F 401
Grensásvegur 1 F 401
108 Reykjavík
90.6 m2
Fjölbýlishús
312
937 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1 F 101
Grensásvegur 1 F 101
108 Reykjavík
90.7 m2
Fjölbýlishús
312
925 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1 A 613
Grensásvegur 1 A 613
108 Reykjavík
91 m2
Fjölbýlishús
312
966 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1 F íb.601
Grensásvegur 1 F íb.601
108 Reykjavík
90.7 m2
Fjölbýlishús
32
974 þ.kr./m2
88.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin