Nýtt á skrá! *** Möguleiki á 20% aðstoð fyrir kaupendur með Skjólfestu ***
Skjólfesta hjálpar þér að komast inn á fasteignamarkaðinn með því að fjárfesta fyrir allt að 20% af kaupverði eignar. Þú þarft einungis að eiga 10% í eigið fé til þess að geta keypt þér eign og 70% lán hjá lánastofnun.
Nánari upplýsingar um Skjólfestu hérna - Nánari upplýsingar um íbúðir til sölu hérna - Nánari upplýsingar um Svansvottun er hérna.
LIND Fasteignasala og Eykt ehf. kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar Svansvottaðar íbúðir við Áshamar 20-26 í Hafnarfirði. Um er að ræða fjölbreyttar 3ja - 4ra herbergja íbúðir (einnig þakíbúðir) í lyftuhúsi. Bílakjallari er staðsettur undir húsunum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í kjallara.
Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með vönduðum álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.
Íbúð 101:Er 108,5 fermetra 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð með góðum 9,1 fermetra svölum. Þar af er geymsla 7,4 fermetrar. Auk þess er sérmerkt bílastæði í bílakjallara. Afhending er við kaupsamning.
Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í anddyri/forstofu, eldhús við opið alrými/stofu, þrjú svefnherbergi, 2 baðherbergi (annað inn af hjónaherbergi) og þvottaaðstöðu inn af öðru baðherberginu. Útgengi á svalir úr stofu.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: Áshamar 12-26
Íbúðirnar við Áshamar í Hafnarfirði eru Svansvottaðar gæðaíbúðir á góðum stað. Þær eru hagkvæmar, rúmgóðar og sameina það besta úr báðum heimum: Friðsæld og náttúrufegurð en skóla og íþróttaaðstöðu, verslun og þjónustu í göngufæri. Svansvottunin tryggir heilnæmt efnisval og loftgæði í íbúðunum, öflugar raka- og mygluvarnir, góða birtuhönnun og hagkvæmni í rekstri.
Eykt ehf. er alhliða verktakafyrirtæki sem hefur skipað sér í fremstu röð slíkra fyrirtækja á Íslandi. Fyrirtækið var stofnað sem sf. 1986 en breytt í ehf. árið 1992. Á þeim næstum 40 viðburðaríku árum sem liðin eru höfum við öðlast víðtæka reynslu af öllum gerðum verkefna – allt frá flóknum framkvæmdum í þrengslum miðborgarinnar að erfiðisvinnu við óblíðar aðstæður á fjöllum og í straumhörðum fjörðum.
Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru HTH innréttingar frá Bræðrunum Ormsson. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum.
Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Electrolux. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.
Hreinlætistæki: Salernisskál (Laufen) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru hitastýrð frá Damixa. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.