Páll Konráð & LIND fasteignasala kynna fallega 4ra herbergja íbúð með rúmgóðum svölum með svalalokun við Unufell 31, 111 Reykjavík.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Um er að ræða rúmgóða fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð í sjö íbúða stigagangi. Eignin samanstendur af þremur svefnherbergjum, baðherbergi með baðkari, eldhúsi, þvottahúsi innan íbúðar, stofu/borðstofu, skrifstofuherbergi á yfirbyggðum svölum og geymslu í kjallara. Sérmerkt bílastæði fylgir með íbúðinni.
Birt stærð eignarinnar er 97,7 fm alls skv. Þjóðskrá Íslands, geymsla skráð 4,6 fm og íbúð 93,1 fm samtals 97,7 fm.
--- Faasteignamat fyrir árið 2026 er 60.050.000 kr,---
Nánar um eign:
Komið er inn á gott hol og gengið er til vinstri inn í eldhúsið. Inn af eldhúsinu er þvottahús/geymsla.
Eldhúsið er með nýlegri eldhúsinnréttinguí hvítir efri og neðri skápar, viðarborðplata, eldavél með bakaraofn í vinnuhæð, innbyggður örbylgjuofn og helluborð Tengi er fyrir uppþvottavél og pláss fyrir einfaldan ískáp. Inn af eldhúsinu er gengið út á yfirbyggðar svalir. Flísar á gólfi.
Alrýmið er rúmgott, skipt upp með borðstofu á upphækkun sem er með harðparketi á gólfi og á gólfi stofuhluta.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, klósett, vaskur og baðkar með sturtu.
Þrjú góð svefnherbergi eru, öll með harðparketi á gólfum og fataskápur í tveimur þeirra. Geymsla er í kjallara og aðgengi að hjóla- og vagnageymslu. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni.
Mjög stutt er í grunnskóla, leikskóla, framhaldsskóla, verslanir, sundlaug, bókasafn, heilsugæslu og aðra þjónustu. Vel staðsett eign.
Eignin hefur verið endurnýjuð að miklu leiti síðustu ár:
Nýtt eldgús 2023 ásamt tækjum frá SIEMENS.
Nýjar flísar, klósett, innrétting og speglaskápur á baðherbergi 2023.
Nýtt vínyl parket lagt í íbúð 2023.
skipt um 3 ofna í íbúð 2025.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.