RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Helluvað 15 íbúð 0401 - fnr. 228-2950Íbúðin er skráð samkvæmt Þjóðskrá 110 fm og þar af er geymsla í kjallara skráð 10,4fm. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni. Húsið er byggt árið 2007 og er 5 hæða fjölbýlishús og er íbúðin á 4. hæð með frábæru útsýni. 3D - SKOÐAÐU EIGNINA Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI HÉR - 3DFÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðkoma: Malbikuð bílastæði fyrir framan húsið. Hellulagt að inngangi í húsið í snyrtilega sameign.
Forstofa: Flísar á gólfi. Góður fataskápur.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt á svalir sem snúa til suðurs.
Eldhús: Flísar á gólfi. Góð innrétting á tveimur veggjum. Bakaraofn í vinnuhæð. Helluborð með gufugleypi yfir.
Svefnherbergi: Eru þrjú. Parket á gólfi. Fataskápar eru í öllum herbergjanna.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og sturta. Upphengt salerni. Ekki er gluggi í rýminu en lofttúða. Innrétting með efri og neðri skáp og handlaug.
Þvottahús/geymsla innan íbúðar: Flísar á gólfi. Hillur á vegg.
Geymsla: Læst geymsla með fataskáp í kjallara með sem er 10,4 fm og þar er einnig hjóla og vagnageymsla.
Lóð: Lóðin er frágengin og er malbikað að inngangi hússins og bílageymslu. Að aftan er tyrfð lóð.
Bílageymsla: Góð bílageymsla er í kjallara með afmörkuðu stæði fyrir íbúðina merkt B74 sem er næsta stæði við inngang inn í húsið. Búið er að leggja fyrir rafhleðslustöð fyrir bíla við stæðið.
Virkilega góð íbúð á næst efstu hæð í góðu fjölbýli í Norðlingaholti. Útsýni frá eigninni er stórglæsilegt. Til suðurs að Bláfjöllum, yfir Heiðmörk og Elliðavatn frá stórum suðursvölum og frá stofu. Húsið er glæsilegt fimm hæða fjölbýli með lyftu og lokaðri bílageymslu byggt árið 2007 staðsett á mjög góðum stað í Norðlingaholti rétt við stofnbraut úr hverfinu. Stutt gönguleið í skóla og ósnortin náttúran í Heiðmörk ekki langt undan. Ljósleiðari er í íbúðinni.Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá Remax í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.is- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.